Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 14

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 14
ungis auknum þjóðarskuldum. Það er verið að binda okkur bagga sem við eigum að bera í framtiðinni, við sjálf og börnin okkar. Á þessu sviði þarf algera kerfisbreytingu. Alþýðuflokkur- inn einn allra flokka hefur krafist þeirrar breytingar. Núver- andi sjóðakerfi er úrelt og steinrunnið og hemill á allar fram- farir. í stað þess þarf einn fjárfestingarsjóð, þar sem allir at- vinnuvegir standi jafnfætis og sjóð sem jafnframt sé reiðubú- inn til þess að leggja áhættufé í nýjungar sem óvissa ríkis um hvernig takist. Vaxtabroddar í nýjum greinum þurfa olnbogarúm og alúð. Ég nefni lífefnatækni, rafeindatækni, nýjar búgreinar, fisk- eldi og ferðamannaiðnað. En ég vil líka nefna sölumennsku sem sérstaka atvinnugrein. Þar á ég við markaðsöflun og sölustarf á erlendum mörkuðum. í dreifingu og sölu liggur stór hluti hins endanlega markaðsverðs og markaðir fást ekki án fyrirhafnar. Öflugt sölustarf er undirstaða iðnþróunar, forsenda þess að við getum rutt nýjum atvinnufyrirtækjum braut. Sú braut verður ekki rudd með stóriðjunni einni heldur með því að virkja hugvit og áræðni margra. Hún verður ekki rudd með því að einblína á einstakar verksmiðjur, heldur miklu fremur af fyrirtækjum sem byrja smátt. Smáfyrirtæk- in hafa orðið útundan í íslensku efnahagskerfi, hlutur þeirra og hlutverk hefur verið vanmetið. Alþýðuflokkurinn á að vera bandamaður þeirra. Við jafnaðarmenn leggjum áherslu á að allir eigi rétt á vinnu við sitt hæfi, að vinnan sé í raun mannréttindi. Engum stendur því nær að benda á leiðir til þess að þetta markmið náist, og það höfum við gert. Við lifum nú á þröskuldi nýs tíma. Tæknibyltingin og hin algera sjálfvirkni er að halda innreið sína. Það mun hafa mik- il áhrif í þjóðfélaginu. Markaðsaðstæður fyrir fisk eru að breytast þannig að ferskur fiskur er nú eftirsótt munaðarvara, en samkeppni á frystum fiski að harðna. Þetta kallar á aðlög- un. Ný tækifæri þarf að nýta. Tæknin á að þjóna manninum 12

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.