Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 16
Taka á upp afkomutryggingu og beinar greiðslur fjöl-
skyldubóta til barnafjölskyldna.
Koma á upp einum sameiginlegum lífeyrissjóði allra lands-
manna. Breyta á söluskatti í virðisaukaskatt, afnema undan-
þágufarganið og lækka skattprósentuna m.a. í því skyni að
bæta innheimtu. Herða þarf skatteftirlit. Flokkun i tolla-
frumskógi á að breyta þannig að vörur flokkist ekki nema í
tvo til þrjá tollflokka. Raunvexti á að lækka. Framkvæmda-
stofnun ríkisins á að leggja niður, ríkisbönkum á að fækka
og gerbreyta fjárfestingarsjóðakerfinu til einföldunar og
þannig að jafnræði sé á milli atvinnugreina og hagur hús-
byggjenda tryggður. Núverandi sölu- og verðlagskerfi land-
búnaðarafurða á að endurskoða.
Sambærilegar kerfisbreytingar þarf að gera á samskiptum
einstaklinga og stofnana. Auka á valddreifingu en afnema
skrifræði. Auka á völd og verkefni sveitarfélaga og samtaka
þeirra, setja lög er tryggi upplýsingaskyldu hins opinbera
gagnvart almenningi, stofna embætti umboðsmanns Alþing-
is og setja lög um skyldur og starfsemi stjórnmálaflokka.
Auka á frjálsræði í fjölmiðlum en marka á í lögum reglur um
skyldur og ábyrgð þeirra.
Þessar róttæku breytingar viljum við gera í efnahagsmál-
um, en í utanrikismálum skulum við vera staðföst í þeirri
stefnu að núverandi skipan öryggismála hafi reynst vel og
henni skuli ekki breyta, jafnframt því sem við hvetjum stór-
veldin til gagnkvæmrar afvopnunar undir eftirliti og leggjum
áherslu á baráttu kúgaðra fyrir mannréttindum og frelsi.
íslensk stjórnmál eru nú í mikilli deiglu. Það eru umbrota-
tímar. Frjálshyggju- og peningamagnspostularnir hafa náð
yfirtökunum í Sjálfstæðisflokknum. Hinir félagslega sinn-
uðu eiga ekki upp á pallborðið.
Framsóknarflokkurinn er bundinn og mótaður af íhalds-
s.amri atvinnustefnu og einnig þar hafa félagshyggjuöflin
orðið undir.
Stjórnarandstaðan er veikari en skyldi vegna þess að