Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Side 28

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Side 28
þingmanna Alþýðuflokksins um tölvumenntun og endur- menntun og hvatti hún allar stúlkur til að afla sér menntunar á tölvusviði sem og menntunar í öðrum nýjum atvinnugrein- um. Varaði hún við hættu á þvi að störf kvenna á vinnumark- aði væru færð inn á heimilin sjálf. Þá mælti Kristín fyrir tillögu um tölvumál og endurmennt. Einnig mælti hún fyrir annarri tillögu varðandi skólamál og skilning milli ólíkra þjóða. Viðar Scheving ræddi um erfiðleika ungs fólks, sem væri að byggja og kynnti tillögu SUJ um þau málefni. Jóhanna Sigurðardóttir fjallaði um hlutverk jafnaðar- manna, að vera forystuafl í baráttu vinstri manna, að vinna að sameiningu jafnaðar- og félagshyggjufólks, en til þess þyrfti að eyða tortryggni milli vinstri flokka. Þá ræddi hún prófkjörsmál og mælti með þeirri breytingu að auk flokks- bundinna félaga fengju þeir að kjósa sem væru óflokks- bundnir og létu skrá sig til þátttöku minnst einum sólarhring áður en prófkjör fer fram, og lagði hún fram tillögu þar um, sem hún flutti ásamt fleirum. Tryggvi Jónsson gagnrýndi störf og stefnu ríkisstjórnar- innar og fyrirgreiðslupólitík hennar. Flutti hann tillögu frá SUJ um samninga Landsvirkjunar við Alusuisse. Karl Steinar Guðnason taldi varhugavert að efna til galdra- brenna á forystumönnum flokksins. Taldi að ekki hefði verið nóg rætt um málefni verkalýðshreyfingarinnar á þinginu. Vildi hann hvetja hvern þann mann sem styddi Alþýðuflokk- inn, að Iáta sig málefni verkalýðshreyfingarinnar miklu varða, eins þyrfti Alþýðuflokkurinn að berjast í samvinnu- hreyfingunni og brjóta niður samtryggingu íhalds og kommúnista í verkalýðshreyfingunni. Karl Steinar lauk sinni ræðu með því að tilkynna að hann gæfi ekki aftur kost á sér sem ritari flokksins. Var þá klukkan orðin 13:00 og var gert hádegisverðarhlé í klukkustund. 26

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.