Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 36
Vilhelm Gunnarsson
Helgi Gunnlaugsson.
Kristín Viggósdóttir gerði grein fyrir tillögu um launamál
kvenna.
Steingrímur Ingvarsson greindi frá störfum laganefndar og
kom fram að nær allar tillögur, sem nefndinni bárust eru
varðandi prófkjörsreglur. Tillögur laganefndar voru í þá átt
að ákvörðun um, hvort prófkjör væri opið eða heimilt Al-
þýðuflokksfólki eingöngu væri í höndum kjördæmisráðs í
hverju kjördæmi fyrir sig.
Gunnlaugur Stefánsson lýsti aðdraganda að samþykkt nú-
gildandi ákvæða um prófkjör. Sagði Gunnlaugur að þátttak-
endur í prófkjörum flokksins hefðu ekki skapað vandamál,
heldur frambjóðendur sem ekki gætu ávallt tekið úrslitum
prófkjörs með manndómi. Taldi hann tillögu laganefndar
vera spor aftur á bak og í þeim látið undan einstökum fram-
bjóðendum.
Samþykkt á tillögum laganefndar geta leitt til óþurftar fyr-
ir Alþýðuflokkinn, að áliti Gunnlaugs.
Gunnar Pétursson vísaði til lítils fylgis Alþýðuflokksins
samkvæmt skoðanakönnun og taldi að opin prófkjör hefðu
síður en svo leitt til fylgisaukningar hjá Alþýðuflokknum.
Hann lagði áherzlu á það, að verjast þyrfti óheiðarleika and-
stæðinganna, sem með opnum prófkjörum gætu ráðið hverj-
ir væru frambjóðendur Alþýðuflokksins ef prófkjör væru
opin.
Eiríkur Hermannsson ræddi lagabreytingar vegna próf-
kjörs og vildi ekki neinar breytingar frá gildandi lögum.
Kristján Möller vildi gera breytingar og loka meira þátt-
töku í prófkjöri. Láta hvern stað velja sér fyrirkomulag — op-
ið eða lokað.
Sigþór Jóhannesson:
Prófkjör séu fyrir flokksbundið fólk og „stuðningsmenn“.
Björgvin Sighvatsson sagðist vera á móti prófkjörum, enda
vissi hann ekki til að þau ættu sér nokkursstaðar stað í lýð-
34