Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 42
Hallsteinn Friðþjófsson gerði grein fyrir tillögu um menn
í verkalýðsmálanefnd, en þangað á þingið að kjósa 29 full-
trúa. Lagði hann til að nefndin yrði opin og að Karli St.
Guðnasyni yrði falið að kalla nefndina saman.
Karl Steinar vildi ekki að þingið veldi 29 fulltr. úr hópi
þeirra sem sinna verkalýðsstörfum, en öllum þeim væri heim-
ilt að skrá sig í nefndina til starfa.
Árna Hjörleifssyni fannst kostulegt bæði að kjósa og ekki
kjósa. Lagði Árni til að fimm væru kjörnir til starfa og til að
vera kjarni í þeim starfshópi.
Gunnlaugur Stefánsson kom með stutta athugasemd, en
Örlygur Geirsson bað um að sitt nafn væri strikað út af listan-
um, enda hafði hann setið þar frá því elztu menn muna.
Árni Gunnarsson lagði áherslu á aukin tengsl Alþýðu-
flokksins við verkalýðshreyfinguna.
Kosið var um 29 fulltrúa í Verkalýðsmálanefnd í samræmi
við 39. grein laga Alþýðuflokksins.
Bjarni Guðnason lagðist gegn því að agnúast væri gegn Al-
þýðubandalaginu í stjórnmálaályktun, eins vildi hann leita
samstarfs við Bandalag jafnaðarmanna.
Tryggvi Jónsson ítrekaði þá það sem fram kemur í tillögu
SUJ og harmaði að þingið skyldi ekkert fjalla um málefni
Mið- og Suður-Ameríku og aðstoð við þróunarlönd. Bar
hann fram breytingartillögu.
Jóhannes Guðmundsson lagði fram breytingartillögu.
Árni Hjörleifsson lýsti störfum stjórnmálanefndar.
Hreinn Erlendsson studdi tillögu Jóns Baldvins. Er ósam-
mála Bjarna Guðnasyni um að ekki megi skamma andstæð-
ingana. Barist skuli jafnt á móti Alþýðubandalagi sem öðrum
andstæðingum.
Haukur Helgason ræddi framkomna breytingartillögu.
Styður till. Bjarna Guðnasonar. Teknar verði upp viðræður
við Bandalag jafnaðarmanna.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson studdi till. Bjarna Guðnas.
40