Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 60
Þetta eru grundvallaratriði í menntastefnu íslenskra jafn-
aðarmanna.
Flokksþingið átelur að enn skuli grunnskólalögin frá 1974
ekki komin að fullu til framkvæmda. Fagna ber því að víðar
njóta nú sex ára börn kennslu i forskóla og að sum sveitarfé-
lög hafa brúað bilið milli leikskóla og grunnskóla með auk-
inni kennslu og dagvistun, svo að til fyrirmyndar er. Leggja
ber aukna áherslu á samstarf þeirra aðila er sjá um fræðslu
og uppeldi barna og unglinga jafnt í skóla sem utan hans og
kappkosta að starfandi séu félög foreldra og starfsfólks skóla
er vinni að velferð nemenda og bættu skólastarfi.
Alþýðuflokkurinn leggur áherslu á að leitast verði við að
skapa samfellu i námi nemenda milli grunnskóla, framhalds-
skóla og háskóla og bendir jafnframt á nauðsyn þess að setja
lög um hina ýmsu framhaldsskóla. Sú óvissa sem þar ríkir
víða, hefur skapað margháttaða erfiðleika og óþarfa öryggis-
leysi jafnt nemenda sem kennara. Flokkurinn vekur einnig at-
hygli á þeirri staðreynd að samkvæmt kröfum þjóðfélagsins
um menntun þegna sinna er framhaldsskólinn nauðsynlegur
þáttur í undirbúningi einstaklinganna undir lifsstarf eða
frekara nám hérlendis eða erlendis.
Alþýðuflokkurinn vekur athygli á vaxandi þörf fyrir sér-
hæft fólk i hraðbreytilegu, tæknivæddu nútímaþjóðfélagi. í
því sambandi ber að stórefla kennslu á háskólastigi og gera
þar með íslenskum háskólum mögulegt að vera samkeppnis-
færa við sambærilegar menntastofnanir í öðrum löndum um
menntun nemenda sinna. Þá skal og leggja aukna áherslu á
vísindarannsóknir og efla þær stofnanir háskólanna er hafa
það hlutverk sérstaklega að sinna þeim.
Alþýðuflokkurinn hvetur til að komið verði á skipulagðri
endurmenntun vegna tækniþróunar í atvinnulífinu og skapa
öllum skilyrði til að aðlagast tæknivæðingu, einkum í þeim
atvinnugreinum þar sem atvinnuöryggi starfsmanna er í
hættu vegna tæknivæðingar.
Alþýðuflokkurinn varar alvarlega við þeirri augljósu
58