Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Blaðsíða 65
— Félagsleg þjónusta og almannatryggingar eru skornar
niður enda hefur eftirspurn eftir aðstoð félagsmála-
stofnana aldrei verið meiri.
— Aldrei fyrr hefur reynt eins á úrlausnir varðandi dag-
vistun barna vegna fyrirvinnumálanna. Unnir áfangar
í skólamálum reynast standa á brauðfótum og fram-
haldsmenntun stefnir í að verða forréttindi.
— Meðan skattalækkanir fyrirtækja og banka nema stór-
felldum upphæðum, hækka lyfja- og læknisþjónusta
gífurlega, sem kemur þyngst niður á efnalitlu fólki.
Ljóst er að hér rikir hugmyndafræði auðhyggjumanna.
Jafnaðarmenn fordæma harðlega árásir þeirra og ríkisstjórn-
ar þeirrar er nú situr á velferðarstofnanir íslendinga. Jafnað-
armenn byggðu upp velferðarkerfið og það hefur skapað ör-
yggi og festu í íslenzku þjóðlífi. Þau viðhorf hafa heyrst, að
markmiðum jafnaðarmanna sé náð í megindráttum í velferð-
armálum, en sú hægri stjórn sem nú ríkir í landi félagshyggju-
fólks, hefur opnað augu landsmanna óþyrmilega fyrir þeirri
staðreynd, að félagshyggjufólk má aldrei sofna á verði sínum
og ganga út frá því sem vísu, að almannatryggingar og félags-
iegt öryggi séu í allra augum ófrávíkjanleg skilyrði í gerð
menningarþjóðfélags.
Jafnrétti í launamálum
42. flokksþing Alþýðuflokksins átelur þá mismunun sem
enn ríkir í launamálum kvenna og karla á vinnumarkaðinum.
Allar kannanir sem gerðar hafa verið sýna að launamisrétt-
ið er mikið og störf kvenna gróflega vanmetin, hvort sem um
er að ræða ófaglærð störf eða störf sem kostað hafa margra
ára sérnám.
Konur skipa að stærstum hluta láglaunahópana og er það
í hróplegu ósamræmi við vinnuframlag þeirra og þann mikla
skerf sem þær leggja fram til verðmætasköpunar og atvinnu-
uppbyggingar í þjóðfélaginu.
63
L