Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Side 67
því enn versnað. Við þetta bætast þeir erfiðleikar, sem há-
vaxtastefna ríkisstjórnarinnar hefur valdið launafólki, sem á
síðustu árum hefur fjárfest í íbúðarhúsnæði.
Barátta launþega fyrir bættum kjörum að undanförnu,
mun ekki bera þann árangur sem til var ætlast, einkum í ljósi
þeirra staðreynda, að ríkisstjórnin hefur þegar sýnt það í
verki að nýgerðir kjarasamningar verði eyðilagðir með öllum
hugsanlegum ráðum, eins og gengisfellingum og verðhækk-
unum lífsnauðsynja. Sjómenn eru nú að hefja sína baráttu
fyrir leiðréttingu launa. Alþýðuflokkurinn minnir á, að sjó-
mannastéttin hefur orðið hvað verst úti í kjaraskerðingarfári
síðustu ára. Flokkurinn lýsir fyllsta stuðningi við kröfu sjó-
mannasamtakanna og óskar þeim árangursríkrar niðurstöðu.
Hin gamla krafa verkalýðshreyfingarinnar um að dag-
vinnulaun nægi til lífsviðurværis hefur sjaldan átt meiri rétt
á sér en einmitt nú. Verkalýðshreyfingin verður að gera
ákveðnari kröfur um að öfl jafnaðar, félagshyggju og sam-
vinnu taki höndum saman í baráttunni fyrir réttlátara þjóðfé-
lagi, þar sem rétturinn er ekki hinna fáu, heldur fjöldans. Það
er óþolandi að postular frjálshyggjunnar fái að vaða uppi
með kenningar sínar um lögmál frumskógarins, þar sem hinn
sterki skuli sigra í krafti peninganna. Frjálshyggjuöflunum
verður að mæta af fyllstu hörku og stöðva þá þróun að á ís-
landi búi tvær þjóðir; önnur rík, hin fátæk.
Áhrif verkalýðshreyfingarinnar á stjórn þjóðmála verður
að aukas, og hún verður að hafa meira að segja um hvernig
fjármálum þjóðarinnar er háttað, hvernig arðinum af vinn-
unni er skipt, hvernig hann er notaður.
Það er nauðsynlegt, að þegar í stað verði rannsakað hverjir
hirða arðinn af striti fjöldans, svo það komi skýrt í ljós, að
hægt væri að greiða almennum launþegum á íslandi mun
hærri laun en nú gerist.
Orkumál
42. flokksþing Alþýðuflokksins krefst þess að fyllstu hörku
65