Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 70
hluti af tekjum lífeyrissjóða. 4. Ákveðinn hundraðshluti af
tekjum fyrirtækja, sem hafaeinokunaraðstöðu til sölu, fram-
leiðslu, útflutnings og hverskonar framkvæmda hér á landi.
Þar eru ríkisfyrirtæki þó undanskilin. Sem dæmi má nefna
alla afurðasölu í landinu, Islenska aðalverktaka, Mjólkur-
samsöluna í Reykjavík og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Sjóðurinn hefði eingöngu skyldur við þau heimili og ein-
staklinga, sem gætu fært sönnur á það, að greiðslugetu þeirra
væri ofboðið, og þar sem heimilistekjur væru minni en 600
þúsund krónur á ári. Meginhlutverk sjóðsins væri að koma
í skil gjaldföllnum skuldum, sem rekja mætti beint eða óbeint
til fjárfestinga í íbúðarhúsnæði.
Atvinnustefna til aldamóta
Barátta jafnaðarmanna fyrir velferð og hagsæld hlýtur að
byggjast á traustu hagkerfi og öflugum atvinnurekstri. Um
leið og jafnaðarmenn gera kröfu til hagsældar fyrir alla
þegna landsins, verða þeir, að leggja fram tillögu og móta
stefnu um það hvernig afla skuli fjár til að halda þvi velferð-
arkerfi, sem byggt hefur verið upp með áratuga baráttu.
Stjórnmálaflokkur, sem kennir sig við lýðræðissósíalisma,
verður ávallt að andmæla harðlega þeim fullyrðingum and-
stæðinganna, að hlutverk jafnaðarmannaflokks sé eingöngu
að sækja á á félagsmálasviðinu, krefjast útgjalda, en íhalds-
flokkanna að hafa allt frumkvæði í atvinnuuppbyggingu og
atvinnuþróun og þar með að hafa stjórn á því hverjar þjóðar-
tekjur verða hverju sinni, svo og hlutur velferðarkerfisins.
Nú eru alvarlegar blikur á lofti í atvinnumálum þjóðarinn-
ar. Ljóst er, að til að koma í veg fyrir atvinnuleysi verður að
taka upp nýja stefnu í atvinnuþróun, svo hlutskipti íslend-
inga verði ekki hið sama og margra annarra þjóða i Vestur-
Evrópu.
Til að hefja endurreisn á sviði atvinnulifs verður að brjóta
upp hið sjálfvirka sjóðakerfi, og koma í veg fyrir áframhald-
68