Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Síða 71
andi helmingaskipti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
á fjármunum þjóðarinnar.
Þá verður að endurskoða skiptingu verkefna á milli þeirra
þriggja rekstrarforma, sem mest fer fyrir í okkar blandaða
hagkerfi; opinbers rekstrar, samvinnurekstrar og einkarekstr-
ar. Einingar þessara rekstrarforma eru í sumum tilvikum
orðnar alltof stórar, og hefur smærri og meðalstór atvinnu-
rekstur liðið stórlega fyrir það. Það er eitt af grundvallarat-
riðum í stefnu jafnaðarmanna, að ríkisvald í blönduðu hag-
kerfi eigi að hafa hemil á áhrifum og völdum stórfyrirtækja.
Um þessar mundir verða jafnaðarmenn, að gæta sín á því
vopni, sem gegn þeim er beitt, einkum af frjálshyggjumönn-
um, að velferðin, tryggingin frá vöggu til grafar, geti gengið
svo langt, að hún svipti manninn athafnaþrá og framtaki. Al-
þýðuflokkurinn vill, að sú mannúðarstefna ríki, og að hver
maður beri í brjósti þá réttlætiskennd, að arðurinn af vinn-
unni skiptist réttlátlega, en safnist ekki á fárra manna hendur.
Þetta mun takast best með því, að jafnaðarmenn virki eigið
framtak til þess að hafa áhrif og völd í atvinnurekstrinum
sjálfum.
Ef litið er á einstök rekstrarform þjóðfélagsins, verður Al-
þýðuflokkurinn að endurmeta afstöðu sína til þeirra. Þar
koma eftirtalin atriði helst til greina:
1. Stefna samvinnu- og jafnaðarmanna er að mörgu leyti
samtvinnuð. Gagnrýni Alþýðuflokksins á samvinnuhreyfing-
unni hefur verið réttmæt. Samvinnuhreyfingin má ekki verða
eins og hvert annað „auðfyrirtæki“ og „einokunarfyrirtæki“
með fámennisstjórn. Tvískipt hlutverk hennar, þ.e. hags-
munagæsla fyrir bæði framleiðendur og neytendur og afger-
andi áhrif Framsóknarflokksins á hreyfinguna í heild, hefur
fjölgað gagnrýnisröddum. Alþýðuflokksmenn eiga að taka
þátt í störfum hreyfingarinnar til að hafa áhrif á þróun henn-
ar. Samvinnurekstur á að hafa stórt hlutverk í atvinnuupp-
byggingu næstu áratuga.
69