Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Side 78
landvarnarmenn, heyja lífsbaráttu allrar þjóðarinnar við
sjálf náttúruöflin.
Alþýða manna á íslandi gerir eina kröfu til ykkar í dag —
aðeins eina: Að þið hafið manndóm til að sópa burt þessari
lognmollu þannig að framvegis hljómi rödd jafnaðarstefn-
unnar í margradda kór íslenzkra stjórnmála — há og tær, þýð
og blíð, og með þeim þunga undirtóni, sem með áleitni sinni
knýr hinn vinnandi mann, til að líta upp frá verki sínu og
leggja við hlustir.
Afmáum þann stimpil, að við séum flokkur lítillátra kyrr-
setumanna, sem una sér bezt bak við gljábónað skrifborð í
palisanderhöllum kerfiskarla og möppudýra.
Ég segi: Við vorum, erum og eigum að vera róttækur um-
bótaflokkur, gallharðir andstæðingar kyrrstöðu, ranglætis
og spillingar, baráttumenn fyrir frelsi einstaklingsins, jöfnum
tækifærum allra til að njóta lífsins gæða og bræðralagi og
samábyrgð með þeim, sem höllum fæti standa og þurfa að
finna hlýja og trausta hjálparhönd þegar mótlæti og mis-
kunnarleysi umhverfisins leggur manneskjunni of þungar
byrðar á herðar.
Ég legg hér fyrir ykkur eitt mál: Það er spurningin: Hverjir
eiga ísland? — Fámenn stétt fjármagnseigenda eða hinn
vinnandi fjöldi? — Þetta er hugsað sem stefnuyfirlýsing Al-
þýðuflokksins um mál málanna í íslenzku þjóðfélagi í dag:
Hvaða leiðir eru færar til að jafna eigna- og tekjuskiptingu
í þjóðfélaginu og stuðla að þjóðfélagslegu réttlæti.
Þetta er mál málanna. Þetta er svarið við þeim spurning-
um, sem nú leita á hug alþýðuheimilanna í landinu: hvers
vegna eru launin okkar svona lág? Hefur þjóðfélagið ekki
efni á að borga laun, sem nægja til lífsframfæris fjölskyldu,
fyrir heiðarlegt vinnuframlag? Hvar eru peningarnir? Hverj-
ir eiga ísland?
Hérna er svarið: Þetta er róttækasta yfirlýsing, sem komið
hefur frá nokkrum stjórnmálaflokki á íslandi um langt skeið.
76