Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 79

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 79
Þetta svar snýst um kjarnann í boðskap jafnaðarstefnunnar: Um jöfnuð og réttlæti. Þetta er pólitískur vegvísir, sem visar okkur leið fram á ókomna tíð. Það er þetta sem ég á við, þegar ég set fram kröfuna um að Alþýðuflokkurinn hasli sér völl sem róttækur umbótaflokk- ur og sameiningarafl jafnaðarmanna í íslenzkri pólitík. Það kemur í hlut þess manns, sem þetta flokksþing velur sér til forystu, að leggja nú upp í langferð vítt og breitt um byggð ból á íslandi með þennan róttæka boðskap í höndun- um og á vörunum, til þess að berja það inn í hausinn á verka- manninum við höfnina, sjómanninum við færið og já — bóndanum við orfið — að við erum þeirra menn; að án þeirra getum við ekkert; og að án okkar mun þeim mistakast að tryggja sinn hlut í þeim verðmætum, sem þeir skapa í sveita síns andlits og með sínum högu höndum. Þetta er málið. Góðir félagar: í upphafi vitnaði ég í Prédikarann, þar sem segir að allt hafi sinn tíma og öllu sé mörkuð stund. Á þessari stundu mæna augu þjóðarinnar á ykkur. Þjóðin væntir svars. Hún væntir aðeins einna tíðinda frá þessu flokksþingi Al- þýðuflokksins: Þorum við — eða þorum við ekki? Hvort mun kvíði hinna tvílráðu frammi fyrir óhjákvæmilegum breytingum vega þyngra á metaskálunum en krafa hinna framsæknu um róttækar breytingar: Á Alþýðuflokknum, á flokkakerfinu, á hinu íslenzka þjóðfélagi? Spurt er: Mun Alþýðuflokkurinn þekkja sinn vitjunartíma — eða láta tækifærið sér úr greipum ganga? Ég geri aðeins eina kröfu: Að svarið — hvert sem það verð- ur — verði einfalt, auðskilið og afdráttarlaust. Þannig að eng- inn hugsandi maður velkist framvegis í vafa um það, hvort Al- þýðuflokkurinn ætlar enn að bíða átekta og velta vöngum eða hvort hann er altygjaður til bardaga og óðfús að kenna á ný til í stormum sinnar tiðar. Félagar: Minnumst þess: Nú er allt að vinna — en engu að tapa. 77

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.