Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2023, Blaðsíða 6

Ægir - 01.04.2023, Blaðsíða 6
6 Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar Sjómennskan, nútíminn og framtíðin Út gef andi: Ritform ehf. ISSN 0001-9038 Rit stjórn: Ritform ehf. Brekkutröð 4, 605 Ak ur eyri. Rit stjór i: Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.) GSM 899-9865. Net fang: johann@ritform.is Aug lýs ing ar: Inga Ágústsdóttir. Net fang: inga@ritform.is Hönnun & umbrot: Ritform ehf. Á skrift: Hálfsársáskrift að Ægi kostar 8200 kr. Áskrift: 899-9865, johann@ritform.is Af Ægi koma út 10 tölublöð á ári. Eft ir prent un og ívitn un er heim il, sé heim ild ar get ið. Leiðari Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft. Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. www.stolpigamar.is Hafðu samband 568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík Sjómannadagshelgin fer í hönd með tilheyrandi hátíðarhöldum víða um land. Segja má að nú séu þessar hátíðir komnar til fyrra horfs eftir að allt riðlaðist á meðan heimsfaraldurinn gekk yfir. Sem betur fer virðist sem þær hafi komið tvíefldar til baka enda eru sjómannadagshátíðirnar meðal allra fjölsóttustu við- burða í mörgum plássum og er sjálf höfuðborgin þar engin und- antekning. Og sem betur fer því sjómannadagshelgin hefur í áratugi verið mjög mikilvægur snertiflötur almennings í land- inu við sjávarútveginn og að sama skapi tímapunktur og tæki- færi fyrir sjómenn til að minna á sína hagsmuni og sitt starf. Engum sem fylgist með sjávarútvegi blandast hugur um að þegar öllu er á botninn hvolft þá eru það öryggismálin sem eru stærsta hagsmunamál sjómanna. Hvert slys á sjó er einu slysi of mikið. Við höfum alltof margan góðan sjómanninn misst í greip- ar Ægis í gegnum árin og aldirnar en sem betur hafa skipin orð- ið öruggari vinnustaðir í tímans rás. Það verður seint hægt að koma algjörlega í veg fyrir alvarleg slys en við fögnum hverju ári sem ekkert banaslys verður á sjó. Það segir okkur, miðað við tölur fyrri áratuga, að þróun sjómannsstarfins er í rétta átt hvað þetta atriði varðar. Upplýsingabyltingin og tæknin eru á hraðferð úti á sjó sem annars staðar. Skipstjórar á miðunum nota ekki bara símann í dag til að spjalla hver við annan heldur líka og kannski æ meira spjallforritin og samfélagsmiðlana. Nákvæmlega eins og allir aðrir. Það eru ótrúlega fá ár síðan sjómenn gátu varla náð sam- bandi heim þegar þeir voru úti á sjó – og voru hreinlega úr öllu sambandi ef þeir fóru í túra á fjarlægari mið. Þetta er gjörbreytt í dag. Fjarskiptatæknin hefur þannig verið mjög til góðs fyrir sjómenn og gert mörgum þeirra starfið mun auðveldara. Það er vel. Störf sjómanna hafa líka breyst á margan annan hátt og augljóslega er lögð á það áhersla í nýjum skipum að útrýma erf- iðustu störfunum, nýta tæknina og gera þannig vinnustaðinn meira aðlaðandi. En engu að síður er augljóst að störfum sjó- manna hefur fækkað með t.d. tilkomu nýrra og stærri skipa. Stærðarhagkvæmni er í skipaútgerð sem öðru og stærri skip eru líka ávinningur hvað öryggismálin varðar. Staða kjarasamninga sjómanna er þessa stundina mjög sér- stök þar sem öll félög sjómanna að frátöldu Félagi skipstjórnar- manna felldu þá samninga sem gerðir voru í byrjun árs. Líkt og Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, lýsir í viðtali í Ægi þá hlýtur það að vera með öllu óviðunandi að stéttir sjómanna skuli skera sig svo algjörlega frá öðrum á ís- lenskum vinnumarkaði að það þyki nánast sjálfsagt að þær starfi án kjarasamnings svo árum skipti. Aðilar hafa augljóslega staðið fastir fyrir á sínum sjónarmiðum við samningaborðið en fyrir alla sem að koma hlýtur að vera í heild sinni óásættanlegt að þróunin hafi orðið með þessum hætti. Sjómannadagurinn er áminning um mikilvægi þessara starfa í samfélaginu og það sem allra mikilvægast er; að okkur auðnist að búa svo um hnúta að til framtíðar sækist ungt fólk eftir að starfa við sjómennsku. Okkur sem eldri erum hættir nefnilega stundum til þess að halda að það sé bara dagurinn í dag sem skipti máli en það eru einmitt tækifæri þeirra sem yngri eru til framtíðar sem skipta enn meiru. Þar fara sjómenn framtíðarinnar. Gleðilega sjómannadagshátíð.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.