Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2023, Blaðsíða 40

Ægir - 01.04.2023, Blaðsíða 40
40 „Fyrst og síðast eru skoðanir skipa og báta í grunninn öryggismál fyrir sjó- menn því þær snúa bæði að ástandi bátanna sjálfra og hins vegar að bún- aði sem getur haft áhrif á öryggið, ef hann er ekki í lagi. Almennt er ástandið gott í flotanum hjá okkur, þó flotinn sé á köflum nokkuð gamall,“ segir Stefán Magnússon, skipaskoðun- armaður BSI á Íslandi ehf. en það fyr- irtæki veitir skoðunarþjónustu fyrir skip og báta um allt land. Stefán er einn sex skoðunarmanna fyrirtækis- ins og er staðsettur í höfuðstöðvum þess í Reykjavík. Þjónustan heima í héraði BSI á Íslandi hóf starfsemi hér á landi árið 2004 og er faggild skoðunarstofa og jafnframt umboðsaðili BSI Group (British Standards Institution) á Íslandi. Verkefni fyrirtækisins sem snúa að skoðunum, eftirliti og vottunum í atvinnulífinu eru fjölbreytt og í mörgum greinum atvinnu- lífsins en BSI á Íslandi fékk árið 2009 starfsleyfi frá Samgöngustofu til skoð- ana á skipum um allt land. Höfuðstöðvar fyritækisins eru í Reykjavík og tveir skipaskoðunarmenn þar staðsettir en auk þess eru skipa- skoðunarmenn fyrirtækisins á Akureyri, Patreksfirði, í Neskaupstað og Vest- manneyjum. Þannig segir Stefán að BSI á Íslandi kappkosti að vera í nálægð við viðskiptavinina og veita skjóta og góða þjónustu. „Frá stofnun höfum við unnið markvisst að því að veita hágæða þjónustu á samkeppnishæfu verði og leggjum okkur fram um að mæta kröfum viðskiptavina,“ segir hann. Hundruð skoðana árlega Skoðunum báta og skipa er skipt upp í nokkra flokka, þ.e. búnaðarskoðun, bol- skoðun, vélaskoðun, stýri- og öxulskoð- un og fjarskiptaskoðun en sú síðast- nefnda annast skoðunarmenn fyrir Fjar- skiptastofnun. Þessar skoðanir þarf að gera í fleiri en einni heimsókn því bát- arnir þurfa að vera á þurru landi fyrir t.d. bolskoðun. Að sama skapi þurfa bátar fyrir hluta skoðana að vera á floti. Stefán segir ef eitthvað sé aðfinnslu- vert sem fram komi í skoðunum þá sé ákveðið kerfi á viðbrögðum, kerfi sem sagt er fyrir um í handbók Samgöngu- stofu. Gefi skoðunarmaður töluna 1 þá fær eigandi eins mánaðar frest til að gera við en þarf ekki að kalla á skoðun- armann til endurskoðunar. Sé talan 2 gefin þá getur frestur verið allt að þrem- ur mánuðum til lagfæringa og endur- skoðunar er krafist. Sé talan 3 gefin þá er aðfinnsluefnið þess efnis að viðkom- andi bát er óheimilt að láta úr höfn. „Það kemur stöku sinnum fyrir að ástand sé þannig á einhverjum atriðum að við heimilum viðkomandi bát eða skipi ekki að fara á sjó fyrr en þeim hef- ur verið kippt í lag og báturinn endur- skoðaður,“ segir Stefán. Skipaskoðunar- menn BSI á Íslandi fara í hundruð skoð- ana á ári en stærsti útgerðarhópurinn er smábátaflotinn. „Í dag hafa allir aðgang að skoðunarskýrslum og handbókum á vef Samgöngustofu og þannig geta báta- eigendur sjálfir farið yfir þau atriði sem skoðun tekur til og haft þau í lagi þegar við komum til að skoða. Þetta gera margir en svo hefur líka færst í vöxt að t.d. smábátaeigendur láti skoða báta sína þegar þeir hætta á haustin og þar » Skoðanir báta og skipa mikilvægar fyrir öryggi sjómanna Rætt við Stefán Magnússon og Gunnar A. Njál Gunnarsson, skipaskoðunarmenn hjá BSI á Íslandi ehf. Skipaskoðanir  Stefán Magnússon, skipaskoðunarmaður. Sex skipaskoðunarmenn BSI á Íslandi ehf. skipta með sér þjónustu á landinu frá fimm starfsstöðvum. Skipaskoðun um allt land

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.