Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.2023, Blaðsíða 22

Ægir - 01.04.2023, Blaðsíða 22
22 FJARÐABYGGÐ H ér að sp re nt Mjóafjarðarhöfn Norðfjarðarhöfn Eskifjarðarhöfn Mjóeyrarhöfn Reyðarfjarðarhöfn Fáskrúðsfjarðarhöfn Stöðvarfjarðarhöfn Breiðdalsvíkurhöfn www.ardabyggd.is við gerum út á góða þjónustu fjarðabyggðarhafnir Indlandi. „Ég sá fréttir þar sem skipið lá upp í fjöru í Indlandi og beið þess að verða rifið niður. Það skar í hjartað, minningarnar helltust yfir og mér fannst einhvern vegin að við yrðum að varð- veita þessa sögu sem skipin áttu hér við Eyjafjörð,“ segir Sigfús. Hann er hæst ánægður með að tekist hafi að fá Elvar Þór til verksins en hann er um þessar mundir að ljúka smíði á líkani af eikar- bátnum Húna sem afhent verður nú í kringum sjómannadaginn. Um þessar mundir eru 60 ár liðin frá því sá bátur var smíðaður hjá Skipasmíðastöð KEA á Akureyri og tekinn í notkun. Stellurnar voru smíðaðar í Noregi ár- in 1968 og 1969 og voru fyrstu árin gerð- ar út frá Færeyjum. Þaðan komu þær til Útgerðarfélags Akureyringa haustið 1973. Um var að ræða systurskip, sem hétu í Færeyjum, Stella Kristina og Stella Karina. Gengu skipin lengi undir gælu- nafninu Stellurnar en við komu í heima- höfn, Akureyri fengu þau nöfnin Sval- bakur og Sléttbakur. „Þetta voru einstaklega falleg skip, að mínu mati þau fegurstu sem siglt hafa um íslenska lögsögu og ég veit að fleiri deila þeirri skoðun með mér,“ segir Sig- fús Ólafur sem sjálfur var skipverji á bæði Sléttbak og Svalbak á árunum 1982 til 1986. Alls eru um 300 manns í Facebook hópnum og þar af nokkrir tugir Færey- inga, skipverjar á annarri hvorri Stell- unni á sínum tíma. „Við deilum sögum og myndum og höfum gaman af. Það er virkilega skemmtilega að hafa Færeying- ana með, þetta er góður félagsskapur og gefandi að spjalla við fyrrverandi skip- verja á þessum skipum,“ segir hann. Annað skipið var selt frá Akureyri en hitt áfram gert út þaðan undir öðrum nöfnum, m.a. hét það Snæfell um tíma og einnig Akureyrin. Skipið var í heild gert út frá Akureyri í eina þrjá áratugi. Skipin voru mikil happafley „Skipin voru mikil happafley, fengsæl og reksturinn einstaklega farsæll alla tíð. Ég á mjög góðar minningar þau ár sem ég var háseti um borð í þeim báðum. Það fiskaðist nánast alltaf vel, yfirmenn um borð voru einstakir, starfi sínu vel vaxn- ir og í landi voru líka góðir stjórnendur. Þannig má segja að vel hafi verið farið með mann þessi ár um borð, aðbúnaður var eins og best var á kosið miðað við þess tíma mælikvarða. Þeir Gísli Kon- ráðsson og Vilhelm Þorsteinsson sem sátu við stjórnvölinn hjá ÚA í landi voru einstakir, alveg frábærir yfirmenn og það var í raun ekki annað hægt en að láta sér líða vel hjá félaginu. Ég get ef- laust talað fyrir hönd flestra þeirra sem sigldu hjá félaginu á þessum tíma að þetta voru mjög góð og eftirminnileg ár. Það báru allir virðingu fyrir þeim og hlýju,“ segir Sigfús. Hann segir virkilega gaman að standa í þessu verkefni, allir séu boðnir og búnir að leggja lóð á vogarskálar en sem dæmi hafi smiðurinn leitað til norsku skipasmíðastöðvarinnar í leit að teikningum og fengið heldur betur góðar móttökur. „Við fengum teikningarnar gefins, það er lýsandi fyrir þá jákvæðni og velvilja sem mér finnst einkenna þetta skemmtilega verkefni,“ segir Sigfús Ólafur. Stefna á Spánverjana næst Þessi mikli meðbyr með verkefninu varð til þess að öðru af svipuðum toga var einnig varpað upp, smíði líkans af skip- um sem á sinni tíð gengu undir nafninu Spánverjarnir. Þau skip voru smíðuð á Spáni og fengu nöfnin Kaldbakur og Harðbakur við komu til Útgerðarfélags Akureyringa hf. á árunum 1974 og 1975. Nefnir Sigfús að 19. desember 2024 verði liðin 50 ár frá því ÚA fékk Spánverjana afhenta. „Við viljum einnig minnast þessara tímamóta og stefnum að því að ná að safna því fé sem þarf svo hægt verði að hefja smíði á líkani af Kaldbak/ Harðbak sem yrði þá tilbúið skömmu fyr- ir þessi tímamót,“ segir hann.  Sigfús Ólafur og Elvar Antonsson undirrituðu á dögunum samning um smíði Elvars á líkani af Stellunum. Það verður afhjúpað með viðhöfn þann 1. nóvem- ber næstkomandi þegar hálf öld verður upp á dag frá komu skipanna til Akureyrar.  Trollið á leið upp í skutrennuna á Svalbak.  Tveir af gömlu ÚA togurunum, Kaldbakur og Harðbakur, komu frá Spáni á sínum tíma og nú er í bígerð að smíða líkan af Spánverjunum, líkt og af Stellunum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.