Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.2023, Qupperneq 35

Ægir - 01.04.2023, Qupperneq 35
35 Sama nafn frá upphafi Bryndís ÍS er 14,2 metrar að lengd og mesta breidd bátsins er 3,7 metrar en báturinn er skráður 19 tonn. „Báturinn hefur alla tíð borið Bryn- dísarnafnið sem er nokkuð merkilegt miðað við þessa löngu útgerðarsögu allt frá 1939 til aldamóta. Algengast er að nöfnum báta sé breytt þegar þeir fara milli eigenda en jafnvel þó Bryndís hafi á þessum áratugum fengið nýja eigendur þá héldu þeir allir þessu nafni. Hið sama gildir um systurskipið, Sædísi. Báðir voru bátarnir alla tíð gerðir út frá Ísa- firði og Bolungarvík,“ segir Hörður um sögu Bryndísar. Eins og fram kemur í meðfylgjandi samantekt er Bryndís ein af sex eikar- bátum sem Bárður G. Tómasson hannaði og smíðaði á sínum tíma fyrir útgerðar- félagið Njörð á Ísafirði. Þegar sögu þeirrar útgerðar lauk fóru fjórir þeirra hver í sína áttina til nýrra útgerða en Bryndís og Sædís voru áfram við Djúpið. „Þremur bátanna var eytt eftir að út- gerð þeirra lauk en mér finnst nokkuð merkilegt að enginn af þessum bátum fórst, þ.e. að manntjón varð, líkt og átti við um marga trébáta á síðustu öld. Þó sökk ein af Dísunum en öllum um borð var bjargað í því óhappi og mannskapn- um var engin hætta búin. Því er óhætt að segja að útgerð bátanna hafi alltaf verið farsæl, ekki síst þegar haft er í huga að allt voru þetta bátar sem voru í stífu útræði. Að mínu mati er mjög mikils virði að tveir þeirra, Bryndís og Sædís, varðveiti þessa sögu því þetta eru bátar sem algjörlega eru byggðir á íslensku hugviti og hönnun og eru merkilegur kafli í sögu trébátasmíði og trébátaút- gerðar á Íslandi,“ segir Hörður. Meðan Bryndís ÍS í útgerð var bátn- um róið á línu, net, snurvoð og rækju- trolli og veit Hörður meira að segja til þess að í afla Bryndísar séu nokkrir tún- fiskar. „Þegar ég kom vestur til að skoða bátinn og festa mér hann var mér líka sagt að stórt atvik hafi orðið hjá Ásgeiri Guðbjartssyni þegar hann skipstjóri á Bryndísi en þá hafi eitt sinn komið » Trébátar  Nýr viður kominn í dekkið.  Bryndís ÍS komin að bryggju á Akureyri um aldamótin.  Bryndís á fjörukambinum við ósa Glerár í fyrrasumar.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.