Fréttir - Eyjafréttir - 02.02.2023, Blaðsíða 4
4 | | 2. febrúar 2023
Eyjamaðurinn í Idolinu
E Y J A M A Ð U R I N N G U Ð J Ó N S M Á R I S M Á R A S O N
Eyjapeyinn Guðjón Smári
Smárason hefur heldur betur
slegið í gegn í Idolinu sem hóf
göngu sína á Stöð 2 núna í
haust. Guðjón Smári var í hópi
þeirra fimm sem eftir voru
síðastliðinn föstudag. Þá var
kvikmyndaþema en Guðjón
Smári tók lagið You Know
My Name úr Bond-myndinni
Casino Royal. Guðjón Smári
lenti í tveimur neðstu sætun-
um og varð að lokum að lúta
í lægra haldi og er því fimmta
sæti niðurstaðan fyrir þennan
hæfileikaríka Eyjapeyja.
Fullt nafn: Guðjón Smári
Smárason,
Fjölskylda: Móðir mín heitir
Sigurlína Guðjónsdóttir og faðir
minn heitir Smári Kristinn Smára-
son. Systur mínar heita Sigríður
Margrét Sævarsdóttir og Bjartey
Ósk Smáradóttir og bræður mínir
heita Aron Kristinn Smárason og
Gunnar Bjarki.
Hefur þú búið annarsstaðar en
í Eyjum: Ég hef búið í flestum
húsum Vestmannaeyja, svo bjó
ég um stund í Grafarvoginum,
Kópavogi, Breiðholti en bý núna í
miðbæ Reykjavíkur. Þegar ég var
19 ára flutti ég sem skiptinemi til
Svíþjóðar í 6 mánuði í skólanum
Osterbyskol.
Mottó: „I have a licence to chill“,
„Þetta reddast“ og „Kötturinn
sekkur ekki í bakkgír“
Síðasta hámhorfið: Síðasta
hámhorfið sem ég tók var á
vaktaseríunum, Nætur-, Dag- og
Fangavaktin.
Uppáhalds hlaðvarp? Uppáhalds
hlaðvarpið mitt er hlaðvarpið
Alvarleikinn sem er einmitt hlað-
varp eftir Eyjamennina Axel Frey
og Brynjar Inga.
Aðaláhugamál: Áhugamál mín
eru að spila tölvuleiki og “chilla”.
Einnig finnst mér gaman að borða
og að vinna.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum
degi sem þú gætir ekki verið án:
Á hverjum degi drekk ég gríðar-
legt magn af koffeini, ef ég myndi
prufa að vera án þess þá væri
voðinn vís.
Hvað óttast þú mest: Ég óttast
mest dauðleika mannsins sem er
hræðsla sem við tökumst öll við á
einum punkti eða öðrum. Þegar ég
hugsa um hvernig dauðinn nálgast
mann nær og nær með hverjum
deginum fyllist ég ekki bara af
hræðslu heldur líka angist.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Lög með miklu væli koma
mér í mjög gott skap, tónlista-
smekkurinn minn er mikið af
væmnum lögum og því væmnara
því betra.
Hvaða ráð myndir þú gefa 18 ára
þér sem veganesti inn í lífið:
Ég myndi segja sjálfum mér að
taka lífinu ekki svona alvarlega.
Hvað er velgengni fyrir þér:
Fyrir mér er velgengni það að geta
sýnt fram á bætingar og þroska.
Hvenær byrjaðir þú að syngja
fyrir aðra? Ég byrjaði í raun að
syngja fyrir aðra á fylleríum í
karaoki.
Hvernig kom það til að þú ákvaðst
að taka þátt í IDOL? Tveir vinir
mínir Mikael Björn og Mímir Há-
kon ýttu mér harkalega að mæta
í prufurnar og varð ég við því og
ekki er erfitt að plata athyglissjúk-
an mann eins og mig í slíkt flipp.
Einnig þorði ég ekki annað en að
taka þátt því ég vildi ekki sjá eftir
því að hafa ekki farið.
Er fólk farið að þekkja þig úti á
götu? Af og til er ég stoppaður í
búðum og í sundi en þegar ég fer
á djammið er mikið verið að pota
í mann og spjalla.
Sérðu fyrir þér að halda áfram
í tónlist? Ég ætla mér alltaf að
syngja og tralla og aldrei að vita
nema skemmtileg vælulög séu á
leiðinni.
Hvernig hefur þessi upplifun ver-
ið? Upplifunin hefur verið sjúk-
lega skemmtileg, ég hélt að þetta
yrði svona B-útgáfa af Ameríska
Idolinu sem þetta var nefnilega
ekki. Þvílíka batteríið í kringum
þetta, endalausir fundir og æfingar
og ljósashow og svaka svaka.
Er eitthvað sem kom þér á óvart?
Það sem kom mér einmitt á óvart
var umfangið á þessu öllu saman
og einnig kom mér á óvart hvað
fólk var að taka vel í það sem ég
var að gera. Ég var bara að mæta
til að skemmta mér og bulla en
svo fékk ég svo sjúklega mikinn
stuðning sem ég bara bjóst ekki
við.
Hvernig velur þú hvaða lag þú
tekur í hvert sinn? Í hverri viku
gleymdi ég að velja lag sem end-
aði á að það var hringt í mig og
sagt mér að velja lag sem endaði
oftast á að ég valdi bara síðasta
lag sem ég var að hlusta á og
náði bara að troða því inn í þema
vikunnar. Hefði átt að leggja meiri
metnað í lagaval svona eftir á að
hyggja.
Eitthvað að lokum? Að lok-
um vill ég þakka öllu eyjafólki
kærlega fyrir allan stuðninginn
yfir ferlið og bið að heilsa öllum
sætum goons í von um Netflix og
chill að nýju ári.
Með kærri kveðju Johnny
Money.
Guðjón Smári Smárason
„Jú, þetta gekk mjög vel og
var mjög skemmtilegt. Þau
eru 50 nemendur í 10. bekk og
ég held þau hafi verið 48 sem
voru með,“ sagði Anna Rós
Hallgrímsdóttir, skólastjóri
Grunnskólans um það framtak
krakkanna í 10. bekk að lesa upp
fréttir og viðtöl sem Ríkisútvarp-
ið sendi út 23. janúar 1973 þegar
gos hófst á Heimaey.
Lesturinn var á heila og hálfa
tímanum, í um tíu mínútur í
hvert skipti og byrjaði klukkan
hálf tvö um nóttina og stóð til kl.
19:00. Lesturinn var í Eldheim-
um og var hann í beinu streymi.
Þær Birna Dís Sigurðardóttir
og Alexandra Ósk Viktorsdóttir
voru tvær af þeim fjölmörgu
nemendum sem tóku þátt í upp-
lestrinum og voru þær sammála
um að þetta hegði heppnast mjög
vel. ,,Mér fannst þetta mjög
skemmtilegt og við lærðum fullt
af þessu. Meðal annars hvað fólk
var rólegt þegar það gerðist og
hvað margir voru tilbúnir til þess
að hjálpa Eyjamönnum,” sagði
Birna Dís og bætti við að sér
hafi komið hva mest á óvart hvað
fólk kom fljótt aftur til Eyja.
Alexandra Ósk hafði sömu
sögu að segja, sér fannst ver-
kefnið mjög skemmtilegt og
hafi hún gang og gaman af að
fræðast meira um gosið. ,,Þetta
fræddi okkur enn meira og æfði
okkur einnig mikið í að lesa upp.
Það sem kom mér mest á óvart
var hvað fólk náði að halda ró
sinni í svona rosalegum aðstæð-
um,” sagði Alexandra Ósk.
Lásu upp fréttir og viðtöl
frá fyrstu stundum gossins