Fréttir - Eyjafréttir - 02.02.2023, Blaðsíða 19
2. febrúar 2023 | | 19
og okkur þykir óendanlega vænt
um þessa gullkistu sem Eyjalögin
og Eyjamenningin eru og viljum
helst alls ekki loka henni. Við
getum sagt sem svo að í dag séu
jafnvel meiri líkur en minni að
við höldum áfram. Í hvaða mynd,
hvernig, hvar, hvenær? Það er
eitthvað sem við munum taka
ákvörðun með á næstu vikum.“
Þau hjón höfðu þetta að segja
að lokum. „Við viljum koma að
þakklæti til allra sem að þessu
hafa komið og stutt við okkur
í gegnum þetta verkefni frá því
á vormánuðum 2011. Það er
einstakt að finna velvilja fólks
og svo að fá hrósið, þakkirnar
og faðmlögin. Ég held að fólk
hreinlega átti sig ekki á hvað þetta
er okkur mikils virði.“
Hér birtum við loks lausnina á
jólakrossgátu Eyjafrétta.
Nokkrar réttar lausnir bárust og
hefur sigurvegari verið dreginn út
hann fær að launum bókaútekt hjá
Eymundsson. Lausnarorðið var
GEIRFUGLASKER.
Sigurvegari:
Haraldur Haraldsson
Foldahrauni 38a
900 Vm
Haraldur
Haralds-
son hlaut
hnossið
Magnús Kjartan og Eyjafólkið Jarl og Eygló Scheving stýra brekkusöng.
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja
Sunnudaginn 19. febrúar 2023 verður haldinn aðal-
safnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vest-
mannaeyja í Safnaðarheimili Landakirkju. Fundurinn
fer fram að lokinni messunni sem hefst kl. 13.00.
Dagskrá fundar:
- Aðalfundarstörf skv. lögum og starfsreglum
Þjóðkirkjunnar.
Sóknarnefnd Landakirkju