Fréttir - Eyjafréttir - 02.02.2023, Side 5
2. febrúar 2023 | | 5
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi
lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum mánudaginn 23. janúar.
Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 4. febrúar klukkan
13.00. Streymt verður á vef Landakirkju, landakirkja.is.
MAGNÚS GUÐJÓNSSON
frá Reykjum
Jón Grétar Magnússon, Guðrún I. Gylfadóttir
Jóhanna Elísa Magnúsdóttir, Karl Logason
börn og barnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
lést á HSU í Vestmannaeyjum sunnudaginn 29. janúar. Útför
hennar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum fimmtudaginn
9. febrúar klukkan 13.
MAGNEA GUÐRÚN
MAGNÚSDÓTTIR
Stóragerði 10
Hannes Haraldsson
Hafdís Hannesdóttir, Jóhann Þór Jóhannsson
Haraldur Hannesson, Anna Ólafsdóttir
Hafþór Hannesson, Þorbjörg Hanna Ögmundsdóttir
og barnabörn
Það var ljúf stemning á tónleik-
unum í Eldheimum föstudags-
kvöldið 20. janúar þar sem fjöldi
Eyjafólks tróð upp undir stjórn
Magnúsar Einarssonar sem hefur
látið til sín taka í tónlistarlífi Eyj-
anna. Voru tónleikarnir einskonar
upptaktur að því sem á eftir fylgdi
í minningu þess að 50 ár eru liðin
frá upphafi Heimaeyjargossins.
Vel var mætt og listafólkið fékk
hlýjar móttökur.
Seyðfirðingurinn Magnús stjórn-
aði tónlistinni af myndugleik en
hann var háseti á olíuskipi sem
nýlega hafði látið úr höfn í Eyjum
þegar gosið kom upp á Heimaey.
Hann sagði frá því og öðru sem
tengdi lögin saman. Tónlistar-
fólkið þekkjum við öll, Helgu og
Arnór, Hermann Inga, Þórarinn
Ólason, Sigurmund Einarsson og
Unni Ólafs, Hrafnhildi Helga-
dóttur, Magnús sjálfan og Elvu
Ósk Ólafsdóttur sem lét sér ekki
nægja að syngja og spila á bassa
heldur las hún úr dagbók móður
sinnar frá upphafi gossins og
var það tvímælalaust hápunktur
kvöldsins.
Hún var stór fjölskyldan að
Heiðarvegi 68. Hjónin Ólafur
Oddgeirsson rafvirki og Ragna
Eyvindardóttir, Gógó og börnin,
Eyvindur, Elva Ósk, Hlynur,
Hjörtur og Ásta Katrín. Öll heima
gosnóttina, nema Eyvindur sem
var fluttur að heiman.
Upplifunin að hlusta á upp-
lestur Elvu var sterk. Hún, þessi
stórkostlega leikkona, að lesa
upp hugrenningar móður sinnar
örlaganóttina fyrir 50 árum. Nótt
sem greyptist í minni allra sem
upplifðu. Þarna lögðu móðir og
dóttir saman og úr varð einstök
upplifun allra sem hlýddu á.
Notaleg tónlistarstund í Eldheimum:
Hápunkturinn dagbókarlestur
Elvu Óskar
Hópurinn sameinaðist í söng í lokin.
Magnús er fengur fyrir tónlistarlíf
Eyjanna.
Elva Ósk hrærði hvert hjarta í
salnum þegar hún las úr dagbók
mömmu sinnar.
Hermann Ingi Hermannsson,
meðlimur Loga, tekur lagið.