Fréttir - Eyjafréttir - 02.02.2023, Page 6
6 | | 2. febrúar 2023
„Dagurinn gekk vel og var blys-
förin og minningarathöfnin í Eld-
heimum endapunkturinn á þessum
degi. Degi sem er okkur Vest-
mannaeyjum alltaf erfiður,“ sagði
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri sem
stýrði athöfninni í Eldheimum
sem var hápunktur dagskrárinn-
ar 23. janúar sl. þegar þess var
minnst að 50 ár voru frá gosinu
1973 sem sneri tilveru þeirra sem
þá bjuggu í Eyjum á hvolf.
„Það er því við hæfi að hafa
dagskrá dagsins lágstemmda og
þakka fyrir að ekki fór verr þessa
nótt fyrir 50 árum. Forseti Íslands
ávarpaði minningarfund bæjar-
stjórnar sem haldin var í hádeginu
þennan dag og fór í heimsóknir
hér í Eyjum í framhaldinu. Forseti
Íslands og forsætisráðherra sýndu
okkur Eyjamönnum þann heiður
að taka þátt í að minnast dagsins
og ávörpuðu gesti minningar-
stundarinnar í Eldheimum um
kvöldið,“ sagði Íris einnig.
Tónlist sem hreyfði við
Fjölmenni var í Eldheimum en
erfitt að segja til um fjölda. Á efri
hæðinni var hvert sæti skipað og
einhver hundruð á þeirri neðri
þar sem hægt var að fylgjast með
því sem fram fór á skjá. Stundin
var hátíðleg og hæfði tilefninu
fullkomlega. Ávörp Guðna Th.
Jóhannessonar forseta, Katrínar
Jakobsdóttur forsætisráðherra og
Páls Magnússonar forseta bæj-
arstjórnar snertu fólk hvert með
sínum hætti.
Silja Elsabet Brynjarsdóttir
söngkona og Helga Bryndís
Magnúsdóttir píanóleikari lyftu
athöfninni á hærra plan með
dásamlegum flutningi á lögum
Oddgeirs og Ása í Bæ, Gylfa
Ægissonar og Jakobs Frímanns
Magnússonar. Ekki verður hér
gert upp á milli laganna en loka-
lagið, Heima þar sem lag Odd-
geirs og ljóð Ása fallast í faðma
og úr verður einstakur galdur
sem hrærir hjörtu hvort sem er í
gleði eða söng. Flutningur Silju
Elsabetar og Helgu Bryndísar
hreyfði svo sannarlega við fólki
og hjá mörgum var örugglega stutt
í tárin. Endapunktur við hæfi.
Guðni forseti:
Blásið var á svartsýnisraddir
„Við minnumst hér og nú hrika-
legra náttúruhamfara. Fyrir hálfri
öld hófst eldgos í útjaðri byggðar
á þessari fögru ey. Þannig ótíðindi
höfðu aldrei áður dunið yfir hér
á landi. Þó hefði getað farið mun
verr. Vissulega varð gífurlegt tjón
og einn maður lést nokkru eftir
upphaf gossins, en umbrotin sjálf
urðu engum að aldurtila,“ sagði
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands þegar hann ávarpaði gesti
í Eldheimum.
Guðni gerði fumleysi og æðru-
leysi að umtalsefni nefndi í því
sambandi skeyti frá lögreglunni í
Vestmannaeyjum til stjórnstöðvar
Landhelgisgæslunnar: „Eldgos
byrjað á Heimaey. Vinsamlegast
láta Almannavarnir vita.“ – Þið
heyrðuð rétt: Vinsamlegast láta
Almannavarnir vita,“ sagði Guðni
og vitnaði í Kristján Eldjárn,
þáverandi forseta sem sagði í
útvarpsávarpi í upphafi eldsum-
brotanna: - Þolgæði, þrek og góð
skipulagning einkenndi „þessa
stórkostlegustu mannflutninga
sem um getur í sögu landsins“,
eins og Kristján forseti komst að
orði.“
Guðni sagði Heimaeyjargosið
mikinn atburð sem við þurfum að
muna og þekkja. „Sögu af áfalli
og skaða, átaki og endurreisn.
Sögu af samstöðu og stillingu. Að
sjálfsögðu var eyjan ekki söm eft-
ir hinar miklu hremmingar og að
sjálfsögðu var sitthvað sem gera
hefði mátt ennþá betur eða öðru-
vísi í bráð og lengd en þá skulum
við einmitt draga lærdóm af því,“
sagði Guðni og þakkaði sýnda
gestrisni og góðvild og óskaði
Eyjamönnum alls velfarnaðar.
„Vestmannaeyjar munu rísa, sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráð-
herra á sínum tíma. Það reyndust
orð að sönnu. Þakka ykkur fyrir,“
sagði Guðni að endingu.
Katrín forsætisráðherra:
Seiglan okkur í blóð borin
„Seiglan sem við höfum sýnt
sem þjóð aftur og aftur þegar
áföll dynja yfir, hvort sem það er
efnahagsleg áföll eða náttúruham-
farir. Það er sú sama seigla sem
Vestmannaeyingar sýndu þegar
eldgos hófst hér á þessari eyju
fyrir fimmtíu árum,“ sagði Katrín
Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín sagði atburðina í Vest-
mannaeyjum ekki eiga sér hlið-
stæðu í sögu landsins. „Samt brást
samfélagið allt við eins og einn
maður. Í áfallafræðum er talað um
muninn á því að verða fyrir sam-
eiginlegu áfalli og einstaklings-
áfalli. Auðvitað getur ein mann-
eskja upplifað hvort tveggja á
sama tíma. En við bregðumst með
ólíkum hætti við þessum tveimur
gerðum áfalla. Sameiginlegt áfall
er þess eðlis að samfélagið þarf að
Minningarstund í Eldheimum Áhrifamikil og við hæfi:
Saga af áfalli, endurreisn,
samstöðu og stillingu
sagði Guðni forseti í ávarpi sínu Forsætisráðherra: Seigla okkur
í blóð borin Forseti bæjarstjórnar: Réttar ákvarðanir og rökréttar
Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Páll Magnússon, Katrín forsætisráðherra, Guðni forseti, Sesselja
Áslaug Hermannsdóttir og Páll Zóphóníasson.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is