Fréttir - Eyjafréttir - 02.02.2023, Page 18
18 | | 2. febrúar 2023
Það er alla jafna gaman þar sem
Eyjamenn koma saman og óhætt
er að segja að það hafi átt vel við
í Eldborgarsal Hörpu í lok janúar
þegar árlegir Eyjatónleikar fóru
fram. Tónleikana sem haldnir
voru í tólfta skiptið í Eldborgarsal
í þetta skiptið undir yfirskriftinni
„Eyjanótt“.
Það var ljóst öllum þeim sem
sótt og fylgst hafa með þessum
tónleikum í gegnum tíðina að við-
burðurinn í ár var með veglegra
móti. Fyrir utan hið hefðbundna
húsband sem alla jafna er skipað
tónlistarmönnum í fremstu röð
mátti finna strengja- og blásturs-
sveit sem settu sinn svip á tónleik-
ana. Þá var auka slagverksleikari
sem skilaði skemmtilegum
hljóðheimi til áhorfenda. Þeir
flytjendur sem fram komu voru að
vanda úr fremstu röð en í ár mátti
finna stærri hóp af höfundum og
flytjendum þekktra þjóðhátíðar-
laga í gegnum tíðina en oft áður.
Ástæðuna fyrir veglegri viðburði
í ár má rekja til þeirra tímamóta
sem Eyjamenn minnast um
þessar mundir og báru tónleik-
arnir þess merki. Skemmtilegum
myndbandsstiklum sem tengdust
eldsumbrotunum á Heimaey var
blandað við tónlistina og jók
þannig áhrifamátt hennar. Það
er ekki hægt að telja upp þá sem
fram komu án þess að minnast á
kórana okkar en bæði Karla- og
Kvennakór Vestmannaeyja komu
fram í fjölda atriða og þóttu
standa sig með prýði.
Góður rómur var gerður af
tónleikunum og var ekki annað
að heyra á gestum að vel hafi
tekist til þetta árið. Á meðal
tónleikagesta var Elísa Reid,
forsetafrú en hún var í samtali
við Eyjafréttir ánægð með það
sem fyrir augu og eyru bar. „Ég
naut tónleikanna mjög. Þótt ég
hafi reyndar ekki þekkt öll þessi
sígildu Eyjalög fyrirfram, þá var
endurnærandi að finna gleðina
og stemninguna sem lá í loftinu i
Hörpu.“
Alltaf jafn gaman
Bjarni Ólafur Guðmundsson og
Guðrún Mary Ólafsdóttir hafa
staðið á bakvið tónleikana öll
þessi ár. Daddi eins og hann er
alla jafna kallaður sagðist vera
í skýjunum með það hvernig til
tókst. „Við Guðrún mín erum
himinlifandi með allar viðtök-
ur og ganginn á tónleikunum
sjálfum.“ Aðspurður segir hann
þetta alltaf vera jafn gaman.
„Já, stórt JÁ, þetta er alltaf jafn
gaman. Þetta er mikið verkefni
og flóknara þegar komið er út í
streymi og annað. Það eru líka
forréttindi að fá að vinna með öllu
þessu æðislega fólki. Gleðin og
ánægjan skín úr andlitum fólks og
í ár fannst okkur óendanlega vænt
um að fá kórana úr Eyjum með
okkur, sem lyftu þessu upp og
brosin á andlitum þeirra sáust frá
Hveravöllum.“
Þeir bestu frá upphafi?
Daddi segir viðbrögð tón-
leikagesta verið með besta móti.
„Við höfum fengið gríðarlega góð
viðbrögð, eiginlega þau bestu frá
upphafi og þó höfum við alltaf
fengið mikið hrós. Margir segja
„bestu tónleikarnir“ og það þykir
okkur vænt um, að geta toppað
enn og aftur.“
Eins og áður segir hafa þau
hjónin staðið í þessu frá því árið
2011, hvað stendur upp úr í allri
þessari vinnu í gegnum tíðina?
„Samstarfið við allt þetta frábæra
fólk. Listamennirnir og fólkið á
bak við verkefnið. Til dæmis hef-
ur vinur okkar Eiður Arnars verið
okkar helsti ráðgjafi, enda mikill
reynslubolti og horfir oft á hlutina
öðruvísi heldur en við. Samstarfið
við Þorvald Bjarna, Jón Ólafs og
svo okkar helsta stjóra Þóri Úlfars
hefur verið frábært, en Þórir hefur
reynst okkur afar vel. Svo verð ég
að fá að nefna Adda Fannar, Finn,
Ástu og allt hitt frábæra starfs-
fólkið hjá Hörpu, að ógleymd-
um Villa „grafíker“ Waren, en
samstarfið við þau öll hefur verið
algjörlega frábært.“
Meiri líkur en minni að við
höldum áfram
Það vakti athygli tónleikagesta að
Endurnærandi að finna gleðina
og stemninguna
Klara Elías flytur Þjóðhátíðarlag síðasta árs og titillag tónleikanna, Eyjanótt,
ásamt Karla- og Kvennakór Vestmannaeyja. Myndir: Brynja Eldon.
Það var ekkert til sparað á tónleikunum í ár. Tveir kórar, strengjasveit og
brasssveit aðstoðuðu hljómsveitina og söngvarana við að fylla Hörpuna af
hinum eina sanna Eyjahljóm. Lokalagið, Lífið er yndislegt, flutt með dyggri aðstoð dáðustu sona Eyjanna.
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is