Úrval - 01.09.1968, Page 54
52
ÚRVAL
sjálfboðaliðar. Komið var upp síma-
þjónustu, sem var í gangi allan sól-
arhringinn. Og nú byrjuðu síma-
hringingar til neyðarnúmers Björg-
unar hf., nr. 426-6600. Númerið var
skráð með símanúmerum lögreglu
og slökkviliðs í símaskránni.
í fyrstu bárust aðeins upphring-
ingar frá fólki, sem var í stöðugum
sjálfsmorðshugleiðingum. Margt af
því var andlega vanheilt fólk. Síð-
ar tóku svo að berast upphringing-
ar frá þeim, sem voru hræddir um,
að þeir kynnu að taka upp á því
einhvern daginn að stytta sér ald-
ur, og vildu koma í veg fyrir, að
af slíku yrði.
Fyrsti sjálfboðaliði Föður Murp-
hys var giftur kaupsýslumaður, er
átti þrjú börn. Hann var mótmæl-
endatrúar. Hann þjáðist af þung-
lyndi, vegna þess að fyrirtæki hans
gekk illa, og hann hafði undanfar-
ið drukkið óhóflega.
Á köldu vetrarkvöldi kvaddi hann
konu og börn með kossi, fór út í
hesthúsið sitt, drakk talsvert af
áfengi, steig á bak hesti sínum og
keyrði hann sporum í áttina að
girðingu. Hann ætlaði að láta sig
detta af baki og gerði ráð fyrir, að
hann skylli á klettana, sem þar
voru, og lægi þar svo þjargarlaus,
þangað til hann frysi í hel. Hestur-
inn stökk yfir girðinguna en reið-
maðurinn datt ekki af baki. Hann
gerði sér grein fyrir því á þessu ör-
lagaríka augnabliki, að hann vildi
í raun og veru lifa áfram. Hann reið
hesti sínum aftur að hesthúsinu. Og
brátt fór hann að vinna fyrir Björg-
un hf. Vegna eigin reynslu átti
hann mjög auðvelt með að ræða við
fólk og gefa því góð ráð um það,
hvernig það ætti að reyna að halda
áfram að lifa þrátt fyrir þunglyndi
sitt. Og hann átti mikilli velgengni
að fagna í þessu starfi sínu.
Sumir, sem hafa sjálfsmorð í
huga, sýna oft og tíðum mikla fram-
takssemi. Eitt sinn skýrði lögregl-
an Föður Murphy frá því um mið-
nætti, að maður einn hefði hlaðið
sér virki í íbúð sinni og hótaði nú
að skjóta fyrst börnin sín og svo
sjálfan sig á eftir. Faðir Murphy
fór heim til mannsins í fylgd með
lögregluþjóni. Lögregluþjónninn
læddist á undan honum upp stig-
ann og Faðir Murphy á eftir. Lög-
régluþjónninn varð að beita öllu
afli til þess að opna hurðina að
íbúðinni, því að innan við hana
hafði verið hrúgað stólum. Föður
Murphy tókst að smeygja sér fram-
hjá stólunum. Á miðju gólfi stóð
heimilisfaðirinn á barmi örvænting-
arinnar og miðaði riffli beint á
préstinn, en yfir öxl hans hékk skot-
færabelti, alsett skotfærum.
Maðurinn fór svo í áttina til eld-
hússins og Faðir Murphy á eftir
honum. Þeir gengu fyrst eftir löng-
um, dimmum gangi og framhjá
svefnherbergjum, þar sem börnin
þrjú hímdu grátandi. Eitt þeirra
var kornungt, og það elzta var
tæpra 11 ára. í eldhúsinu settist
maðurinn við borð, rétti Föður
Murphy biblíu og sagði honum að
lesa þá kafla, sem hann hafði merkt
við. Sállækni þeim, sem hafði haft
manninn til meðhöndlunar, var
hleypt inn í íbúðina, er Faðir Mur-
phy var að lesa í Gamla Testament-
inu um þá Isaiah og Jeremiah. Fað-