Þjálfi - 01.04.1941, Side 5
1941
ÞJALFI
Reykjavík - Apríí
Þjálfi er gefinn út af 12 ára bekk B í Miðbæjarskólanum til ágóða fyrir ferðasjóð bekkj-
arins. Öll börnin í bekknum — 33 — skrifa í blaðið. Þrítugasti og fjórði höfundurinn, sem í
blaðið ritar, hefur verið í bekknum undanfarna vetur, en er nú ekki í bænum, en vildi samt
vera með í fyrirtækinu.
Plest öll börnin hafa sjálf valiö sér efnið, sem þau skrifa um. Upphaflega var til þess
ætlazt, að myndir fylgdu mörgum ritgerðunum, en frá því varð að hverfa að mestu vegna
þrengsla. Kostnaöar vegna var ekki hægt að hafa blaöið stærra. Þess ber að geta og þakka
alveg sérstaklega, að faðir eins barnsins í bekknum hefur lofað að styrkja blaðið allverulega
fjárhagslega. Er ekki víst, að lagt hefði verið í útgáfu þess án þess loforðs.
Þjálfi þakkar öllum, er stutt hafa að útkomu hans. Hann biður lesendurna að færa til
betri vegar það, sem miður er um efni og útlit. Kennarinn.
JSTonni
fer 1 STeit.
Nonni átti að fá að fara í sveit næsta
sumar. Hann hafði aldrei farið í sveit áður.
Hann hlakkaði mjög mikið til. Nonna var
farið að leiðast að bíða eftir deginum þeim
arna. Loksins rann sá dagur upp. Það var
glaða sólskin og ofurlítil gola. Nonni stóð
feröbúinn á tröppunum heima hjá sér og
beið eftir bílnum. Bíllinn kom og Nonni
kvaddi pabba og mömmu og steig síðan upp
í bíli'nn. Bíllinn þaut áfram, og ekki leið
á löngu, þar til hann var kominn út fyrir
borgina. Þá tók við fögur sjón. Fjöllin langt
1 fjarska með snjó í toppinn. E. t. v. fer ég
bak við þessi fjöll, hugsaði Nonni. Það væri
gaman að vita, hvað væri þar á bak. við.
Nonni horfði út um glugga bílsins og sá
fallega sveitabæi og kýr og kindur og fleira.
Bíllinn þaut áfram. Loks nam bíllinn stað-