Þjálfi


Þjálfi - 01.04.1941, Blaðsíða 13

Þjálfi - 01.04.1941, Blaðsíða 13
Þ J Á L F I 13 sveitalífsins, og Áslaug litla var alltaf til- búin að hjálpa til þess, sem hún gat, aldurs síns vegna. Hún var aðeins 10 ára gömul. Þegar hún hafði lokið við að klæða sig, hljóp hún út á hlað, og var hún þá nærri búin að velta um koll henni Stínu gömlu. „Já, já, heillin, eitthvað gengur nú á,“ sagði Stína gamla. „Blessaður ungdómurinn er alltaf samur og jafn, kátína, gleði og áhyggjuleysi, ójá, einu sinni var maður ungur líka.“ Áslaug staðnæmdist ekki fyrr en fyrir ut- an túnið, og hvað sá hún? Lítið fuglshreið- ur við fætur sér. Hún var sannfærð um, að ósýnilegar verndarvættir hefðu varðveitt hana frá að stíga ofan á hreiðrið. Augu Áslaugar fylltust tárum af þakklátssemi, því að þessi morgunn hefði orðið dapur, ef hið haganiega tilbúna hreiður hefði ónýtzt af hennar völdum. Þessi atburður festist vel í minni Áslaug- ar. Þegar hún var komin yfir fermingu, gekk hún í dýraverndunarfélag. Áslaug giftist góðum og nýtum manni, og voru þau hjón orðlögð fyrir gæði sín við alla smæl- ingja. Sigríður L. Jacobsen. Laxárgljúfur í sumar var ég í sveit, að Laugum í Suð- ur-Þingeyjarsýslu. Þar var mjög skemmti- legt. Voru margir krakkar þar. Við fórum í gönguferð á hverjum rúmhelgum degi. Fyrst fórum við stutt, en svo fór það að lengjast, og seinasta ferðin, sem við fórum, var ellefu eða tólf kílómetra leið. Var það að Laxárgljúfrum. Þau eru þar, sem Laxá fellur úr Laxárdal og niður i Aðaldal. Við fengum nesti með okkur og lögðum síðan af stað um hádegið. Fjórir kennarar fóru með okkur. Fórum við fyrst niður með Reykjadalsá og síðan í gegnum fallegan skóg. Við sáum mikið af berjum á leiðinni, en við máttum ekki vera að tína þau. Við hvíldum okkur lítið á leiðinni, nema þegar við borðuðum nestið okkar. Sumir voru nú orðnir þreyttir, en allt í einu heyrðum við niðinn frá Laxárgljúfrum. Urðu þeir þreyttu þá rólegir. Þarna sáum við margt merkilegt. f miðju gljúfrinu eru tvö stór tré, afskap- lega falleg, og voru stórir steinar í kring um þau. Er ákaflega fallegt þarna. Áin beljar fram í miklum bratta milli kletta. Margir hólmar eru í ánni. Er þar mikið af hvönn og margar aðrar jurtir. Þarna við Laxárgljúfrin er næst stærsta raforkustöð á landinu, næst Sogsstöðinni. Er hún byggð fyrir Akureyri. Við fórum í tveimur stórum bílum heim. og var glatt á hjalla á heim- leiðinni. Svava Jónsdóttir. Skantaferð á Elliðavatn Einn góðan veðurdag í janúar í vetur fór 12 ára bekkur B í Miðbæjarskólan- um skautaferð upp á Elliðavatn. Veður var mjög gott, logn og sólskin. Um kl. 11 lögðum við af stað. Gekk ferðin vel og slysalaust upp eftir. Þegar komið var upp á Vatnsendahæð, fórum við úr bílnum og gengum heim að sumarbústað símamanna og fengum að geyma nestið okkar þar. Fórum við nú niður að vatninu og sett- um á okkur skautana. Fórum við síðan að renna okkur á spegilsléttum ísnum. fs- inn var svo hreinn, að við sáum alveg niður í botn. Við sáum allan gróðurinn í botninum og hverja mishæð. Einkenni- legast og skemmtilegast var þó að sjá sil- ungana skjótast undan fótum manns. Sumir krakkarnir voru fyrst hálf smeykir að renna sér á svona glærum ís, en það fór brátt af, þegar þau fundu, að ísinn var vel traustur. Vorum við svo að renna okkur fram og aftur um svellið, þangað til að við fórum að borða, sum úti, en

x

Þjálfi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjálfi
https://timarit.is/publication/1899

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.