Þjálfi - 01.04.1941, Blaðsíða 9
Þ J Á L F I
9
meðan hann var í burtu, var búið til laufa-
brauð, og Helga litla skar út margar kökur.
Nú kom húsbóndinn heim og fékk Helgu
böggul frá frænda hennar í borginni. í
bögglinum voru sokkar og vettlingar og svo
fíkjur og margt annað góðgæti. Helga gekk
í skóla, því að húsbændurnir vildu láta
hana læra. Hún var alltaf hæst í skólan-
um. Einu sinni, þegar Helga var í skólanum
rétt fyrir jólin, sagði kennarinn börnun-
um, að þau ættu að halda skemmtun, og
nú ættu þau að kjósa börn til þess að
skemmta. Það voru kosin tíu og var Helga
ein af þeim. Helga var glöð yfir því að mega
osin tíu, og var Helgaskemmta. Það voru k
hét Blái boli, og svo átti að verða leikrit
og söngur o. m. fl. Skemmtunin tókst ágæt-
lega og Helga var mjög ánægð yfir því, sem
hún hafði gert og skemmti sér alveg prýði-
lega.
Vilhelmína Adolphsdóttir.
Bleikja
XJrriSi
Happasœl veiðiför
Sumarið 1938 var ég nokkrar vikur aust-
ur við Ljósafoss. Sunnudagsmorgun nokk-
urn bað maður, er heitir Gísli, pabba minn
um að hjálpa sér við að vitja um net, er
hann átti ofarlega í Úlfljótsvatni að vest-
anverðu, og fékk ég og bróðir minn að koma
með. Netin voru sjö. Átti pabbi að fá að
velja sér tvö fyrir hjálpina. Sagði nú Gísli
pabba, hvernig þau lægju, og átti pabbi að
velja sér þau, áður en við kæmum að vatn-
*
inu. Tveir bátar lágu í fjörunni, og settum
við annan þeirra fram. Tvö austurstrog
lágu í bátnum, en ekki voru þau álitleg.
Eftir að við vorum komnir skamman spöl
út á vatnið, var kominn allmikill austur í
bátinn, vegna þess að farið var að hvessa
og báturinn lak allmikið. Var ég og bróðir
minn þá fengnir til að ausa bátinn, en
ekki gekk það vel, því að trogin voru mjög
götótt. Fyrst drógum við tvö net, sem Gísli
átti. Þegar það var búið, var komið svo
vont veður, að ég og bróðir minn vorum
settir í land vestanmegin við vatnið. Pabbi
og Gísli drógu nú inn hin netin og reru
síðan lífróður til lands. Þegar þeir komu til
lands, fréttum við, að pabbi hefði fengið
meira úr öðru netinu sínu, en Gísli úr öll-
um sínum. Nú var orðið svo hvasst, að eng-
in leið var að róa yfir aftur, svo að við
urðum að ganga með alla veiðina fyrir
vatnið og lengst niður fyrir og svo upp með
aftur og yfir stífluna. En allir voru dauð-
hræddir um, að við hefðum farið okkur
að voða á vatninu. En við höfðum líka
silung í matinn í margar vikur.
Ágúst Sigurðsson.
Kaupirðu góðan hlut,
þá rnundu, hvar þii
fékkst hannl
Allir unglingar, sem vilja vera hraust-
ir, kaupa og nota Alafoss föt.