Þjálfi - 01.04.1941, Side 11
Þ J Á L F I
11
MorgTmninn 10. maí 1940
Um kl. 8 10. maí vaknaði ég við suð úti
fyrir. Ég hljóp út í glugga og sá flugvél á
sveimi yfir borginni. Síðan varð mér litið
niður að höfn, þar lágu nokkur herskip. í
því kom leiksystir mín inn til mín og sagði
mér, að brezkur her hefði hertekið landið
í nótt. Ég flýtti mér í fötin og fór að þýzka
ræðismannsbústaðnum, en þar var fyrir
fjöldi af brezkum hermönnum. Ég stóð þar
á að gizka klukkutíma. Steig þá þýzki ræð-
ismaðurinn ásamt fjölskyldu sinni upp í
bíl. Var hann sjálfur í fremsta bílnum
ásamt yngri dóttur sinni og konu, en eldri
dóttir hans og einhver maður voru í næsta
bíl á eftir. Þar á eftir fóru margir bílar
með farangur þeirra. Ég gekk á eftir bíl-
unum niður að höfn. Þar var allt á tjá og
tundri. Hermenn á fleygiferð með poka á
bakinu og annað þess háttar. Ég horfði á
þetta svolitla stund, en síðan gekk ég upp
í Miðbæinn. Þar voru hermenn á víð og
dreif. Á einum stað voru strákar að reyna
að láta þá skilja íslenzku á einhverjum
miða, sem á var ritað um innrás Þjóðverja
í Holland og Belgíu. Mér fannst þetta hafa
verið óvenjulegur morgunn og margt
nýstárlegt borið fyrir augu.
Þorbjörg Pétursdóttir.
I
Leiðin liggur um Hafnnrstrœti
/
i
EDINBORG
Páll litli: Pabbi, úr hvaða veiki dó Dauða-
hafið?
Æðey
Myndin á fyrstu síðunni átti að fylgja
þessari grein, en reyndist of stór til þess.
Ég hef dvalið nokkur sumur í Æðey, og
ég ætla að segja dálítið frá eyjunni. Æðey
er á ísafjarðardjúpi. Eyjan er lengri frá
norðri til suðurs. Norðari hlutinn af eyj-
unni er beitiland. Hinn hlutinn, sem kall-
aður er Suðureyja, er tún og engi. Æðey er
mjög mishæðótt. Stærsti hóllinn heitir
Kríuhóll, en sá hæsti Stóra-Borg, og er það
eini staðurinn, sem sjór sést frá allt í
kring um eyjuna. Meir en helmingur
strandlengjunnar eru klettar. Inn í eyj-
una skerst vík, og í mynni hennar eru
tveir hólmar, er mynda þarna höfn. Við
þessa höfn standa húsin. Æðey er að-
eins ein jörð, en auk þess er þar sumar-
bústaður. í Æðey er enn fært frá. Það
er venjulega fært frá 40—50 ám, og eru
þær mjólkaðar í kvíum allt sumarið. í Æðey
er mjög mikið æðarvarp. Þegar farið er í
dúnleitarnar, hefur hver maður poka, sem
hann safnar í dúninum, og körfu, sem
hann safnar í eggjum. Stundum finna
menn unga, sem æðarkollan hefur yfir-
gefið, Eru þeir þá teknir og látnir í fóstur
til annarrar kollu. Æðarfuglinn er mjög
spakur þarna, t. d. verpir æðarkolla alltaf
í sama hreiðrið, alveg við húsið. Á eynni
er einnig mjög mikið kríuvarp. í Æðey eru
hvorki rottur né kettir.
Ása Guðjónsdóttir.
Anna og Tryg'g’ur
Anna litla var fimm ára gömul. Hún var
með ljóst hrokkið hár. Hún átti heima í
afskekktum dal milli hárra fjalla. Aðal
leikstaður hennar var uppi í hlíðinni, þar
var hún með Trygg sínum, þegar veður
leyfði. Einu sinni sem oftar var Anna og
Tryggur að leika sér uppi í hlíð. Anna var
orðin þreytt á leiknum, og hana langaði til
að tína blóm. Tryggur lagðist niður hjá