Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Qupperneq 4
Vorið 1953 flytja foreldr-
ar mínir Jakob Guðlaugsson og
Guðveig Bjarnadóttir, úr Reykja-
vík að Skaftafelli í Öræfum. Ör-
æfasveitin var mjög einangruð
á þessum árum og sundur skor-
in af jökulvötnum sem stund-
um voru slæm yfirferðar, sér-
staklega á veturna þegar vötn-
in voru klakakropin. Sveitin var
lokuð af stórfljótum bæði að
austa og vestan. Vatnajökull lok-
aði sveitinni að norðan og Atl-
anshafið girti sveitina af að sunn-
an. Eina lífæðin við umheiminn
var oft á tíðum um flugvöll á
Fagurhólsmýri.
Á Hofi í Öræfum var svo sam-
komuhús fyrir sveitina, nálægt
miðju sveitarinnar. Þar voru með-
al annars haldin böll og skemmt-
anir fyrir fólkið í sveitinni.
Það var svo milli jóla og nýárs
árið 1954 sem að ég fékk að fara
í fyrsta sinn á jólaball, eins og
það var kallað í þá daga. Ég var
það ungur að árum þegar þetta
var að ég man nú mjög lítið eft-
ir þessari ferð, en við móðir mín
rifjuðum þetta upp í sameiningu
fyrir nokkrum árum síðan.
Lagt af stað
á jólaball
Það hefur sennilega verið rétt
um hádegi, einhvern daginn á
milli jóla og nýárs, að farið var
að hafa sig til á ballið. Ég var
klæddur í mín bestu föt. Það
voru ljósar smekkbuxur og ný-
ir strigaskór, sem að ég fékk
rétt fyrir jólin. Mér var svolítið í
nöp við þessa strigaskó, ég vildi
alvöru spariskó, ég var sko að
fara á ball, en þeir voru ekki til
á mig í það skiptið. Svo var lagt
af stað, eldri bróðir minn Sigurð-
ur og frændi minn Guðlaugur
Björgvinsson, sem var í heimili í
Skaftafelli á þessum árum, lögðu
af stað með mig labbandi aust-
ur og niður Skaftafellsbrekkurn-
ar. Það var snjór yfir öllu, sól og
talsvert frost. Snjórinn sindraði
í sólinni og það marraði í snjó-
num undan fæti. Ég mátti ekki
setjast í snjóinn eða leika mér
í fínu fötunum, en ég var samt
spenntur fyrir þessu ferðalagi.
Pabbi og mamma komu svo á eft-
ir okkur á dráttarvél sem var eina
farartækið á heimilinu þá. Drátt-
arvélin var treg í gang í frosti
og hafa foreldrar mínir örugg-
lega sent okkur á undan hefði
vélin ekki farið í gang. Gekk nú
ferðin betur á farartæki en gang-
andi. Fimm kílómetrum austan
við Skaftafell er Svínafellsá, var
pabbi búinn að hafa samband
austur að Svínafelli til að fá bíl á
móti okkur út að ánni, bílstjóri
var Jón Pálsson frá Svínafelli.
Það voru miklar skarir meðfram
ánni og ófært öllum ökutækjum.
Pabbi var með upphá vaðstígvél
með og bar hann mannskapinn
Þorsteinn Jakobsson
Jólaball á Hofi í Öræfasveit 1954
Fjölskyldan í Bölta í Skaftafelli 1955. Móðir Þorsteins með Bjarna bróðir hans nýlega fæddann, Þorsteinn situr í fang-
inu á föður sínum og Sigurður bróðir hanns lengst til hægri.
Óskum viðskiptavinum og Snæfellingum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu
sem er að líða.