Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Blaðsíða 8

Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Blaðsíða 8
Einu sinni fyrir langa löngu bjó fjölskylda á Siglufirði. Það var 19. desember og það var kvöld. Systkinin Lilja og Siggi voru að fara í háttinn. Lilja var í fjórða bekk og Siggi í öðr- um bekk. Lilja var orðin mjög spennt fyrir jólunum en Siggi hugsaði bara um tölvuna. Lilja var strax farin að hugsa um gjaf- irnar, hún óskaði þess að fá nýju- stu Harry Potter bókina en Siggi vildi bara fá nýjasta tölvuleik- inn í GTA. Lilja gat hreinlega ekki sofnað fyrir spenningi en Siggi svaf eins og steinn. Lilja vakti í marga klukkutíma því hún var líka spennt fyrir því að skreyta. Daginn eftir var mamma þeirra í geymslunni að leita að jólaskrautinu en tuldraði með sjálfri sér: „hvar er jólaskrautið?“ Lilja skyldi ekki neitt í neinu og Siggi kom og spurði hvað væri á seiði. Mamma þeirra sagði að hún fyndi ekki jólaskrautið. Þá hafði Siggi áhyggjur af því að fá ekki nýja Playstation jólaskraut- ið sitt. Ekki nóg með það heldur mamma þeirra fann heldur ekki jólagjafirnar. Þá gelti Lubbi hundurinn þeirra allt í einu mjög hátt. Lilja og Siggi hlupu inn í stofuna og þar voru fótspor, risastór katta- fótspor! Ekki skrítið að Lubbi gelti. Lilja klæddi sig og labbaði inn í herbergi til að hugsa málið. Allt í einu fékk hún hugmynd, hún náði í Sigga og sagði honum að þau myndu elta fótsporin og finna jólaskrautið. Þau klæddu sig mjög vel því það var kalt í veðri. Þau eltu fótsporin upp fjallið, þau voru búin að labba óralengi þegar þau heyra aft- ur gelt og aftur! Þau líta fyrir aftan sig og þar var Lubbi. Þau þrjú löbbuðu áfram og loksins sáu þau helli en þá trampar risa- stórt tröll út og þrumar: „Hvað eru þið að gera hér?“ Lilja sagði honum að þau væri að leita að jólaskrautinu sínu. Siggi spurði tröllið hvað það héti og það sagðist heita Bjarki Bóbó Snæ- fell. Lilja og Siggi kynntu sig. Lilja spyr Bjarka hvort hann hafi séð stóran kött einhvers staðar. Hann svaraði neitandi og sagð- ist vera að vernda grýluhelli. Þá spyr Siggi: „Er þetta grýluhell- ir?“ og Lilja spyr: „Er grýla þarna inni? Bjarki verður allt í einu mjög vandræðalegur á svipinn og seg- ir: „Úps“. Hann segir krökkun- um að það væru aldrei jól í tröllaheimi sem honum þætti mjög leiðinlegt. Lilja spurði Bjarka hvort hann hafi nokk- uð tekið jólaskrautið og Bjarki kinkar vandræðalega kolli. Lilja spyr hann hvort jólakötturinn hafi verið með honum og hann kinkaði aftur kolli og sagðist bara hafa viljað halda upp á jólin með jólakettinum, honum fannst jólin svo heillandi. Allt í einu heyrðist þrumað: „Hvað eru þið að gera hjá hell- inum mínum!?“ Þetta var Grýla og með henni var Leppalúði og allir jólasveinarnir. Þá heyrð- ist mjálm og Grýla sagði: „Uss Sigmundur“. Þá hrópaði Siggi upp yfir sig: „Sigmundur? Heit- ir jólakötturinn Sigmundur?“ Grýla sagði að hún væri nú bara að fylgja nafnatískunni og hann héti jú Sigmundur. Stúfur spurði krakkana hvað þeir væru að gera þarna hjá Grýluhelli og Lilja sagði honum frá týnda jólaskrautinu og gjöfunum. Þá strunsar Grýla inn í hellinn og viti menn! Þarna var jólaskrautið og allar gjaf- irnar. Grýla varð öskureið við Bjarka og Sigmund, Bjarki fór að hágráta og sagðist bara vilja halda upp á jólin. Lilja stakk þá upp á því að þau gætu öll haldið jólin með þeim. Grýla virtist nú ekki vera til í það fyrst en þegar hún sá að allir jólasveinarnir, Bjarki, Sigmundur og meira að segja Leppalúði vildu halda jól ákvað hún að samþykkja það. Hurðaskellir bauðst til að skutla öllum á sleðanum sínum. Það settust allir á sleðann og þau byrjuðu að renna af stað. Lubbi gelti og gelti. Eftir nokkrar mín- útur voru þau komin heim og fóru að skreyta allt hátt og lágt. Mamma var mjög hissa þegar hún sá allt skreytt og jólagjafirn- ar þegar hún kom heim en enn- þá meira hissa þegar hún sá alla gestina en það urðu svo sannar- lega gleðileg jól. Höfundar: Júlía Rós Guðbjartsdóttir og Gabríel Gói Jóhannsson Óskum viðskiptavinum okkar og Snæfellingum öllum gleðilegra jóla. Við þökkum viðskiptin á árinu. Jólasögusamkeppnin Týndu jólin Útgáfa Jökuls á næstunni Jökull kemur út milli jóla og nýárs. Skil á auglýsingum og efni er fyrir kl. 16 miðvikudaginn 27. desember. Snæfellingum óskum við gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árinnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.