Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Blaðsíða 22
Eftir erfið og lærdómsrík
tímabil í fótboltanum undanfar-
in ár má með sanni segja að Vík-
ingur Ólafsvík hafi náð að rétta
aðeins úr kútnum og að árið
2023 hafi verið skref í rétta átt.
Eftir tímabilið 2022 lét Guð-
jón Þórðarson af störfum sem
þjálfari liðsins og okkar eigin
Brynjar Kristmundsson tók við
starfinu. Brynjar hafði þá ver-
ið aðstoðarþjálfari liðsins í 3
tímabil undir þremur mismun-
andi aðalþjálfurum og hafði því
safnað að sér góðri reynslu.
Veturinn fór í að safna liði fyr-
ir átök sumarsins og að spila
á undirbúningsmótum. Brynjar
náði hratt og örugglega að setja
svip sinn á liðið sem lék á köfl-
um fantagóðan fótbolta á undir-
búningstímabilinu.
Liðið byrjaði fyrstu leikina vel,
var með sjö stig eftir fyrstu þrjá
leikina og allt leit vel út. Þá kom
reyndar skellur í Breiðholtinu
þar sem liðið tapaði 7-0 gegn
ÍR. Eftir stórtapið gegn ÍR sýndu
strákarnir hinsvegar úr hverju
þeir eru gerðir og komust á gott
strik. Þegar mótið var hálfnað
voru Ólsarar á toppi deildarinn-
ar, á stað sem liðið hafði ekki
verið á lengi.
Eins og áður segir lék liðið
á köflum gríðarlega vel en sök-
um meiðsla tókst liðinu ekki
að halda dampi út mótið. Liðið
endaði að lokum í 5.sæti móts-
ins með 38 stig, sem er 10 stiga
bæting frá árinu á undan.
Á lokahófinu var Luke Williams
valinn bestur, Björn Axel Guð-
jónsson var markahæstur og
Asmer Begic var efnilegastur. Þá
fékk Brynjar Vilhjálmsson viður-
kenningu fyrir 100 leiki.
Það er ljóst að stór skref voru
tekin á árinu. Ungir heimamenn
náðu sér í mikla og góða reynslu
sem mun vafalaust nýtast liðinu
vel á næstu árum. Undirbún-
ingur fyrir knattspyrnusumarið
2024 er nú þegar hafinn og þar
ætlum við að halda áfram að
byggja ofan á það góða sem við
gerðum seinasta sumar.
Jóhann Pétursson
Knattspyrnusumarið 2023
Óskum öllum Snæfellingum
gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Sameiginlegt jólaball
í Snæfellsbæ
Fimmtudaginn 28. desember kl. 16.30 - 18.00
verður sameiginlegt jólaball á vegum
félagasamtaka í Snæfellsbæ.
Jólaballið verður á Kli
Hefðbundin dagskrá:
Veitingar, jólasveinar og dansað í kringum jólatré.
Miðaverð er 500 kr. og enginn posi,
börn skulu vera í fylgd með fullorðnum.
Allir velkomnir - Góða skemmtun
Kvenfélag Ólafsvíkur
Kvenfélag Hellissands
Lionsklúbburinn Rán
Lionsklúbbur Nesþinga