Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Qupperneq 31

Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Qupperneq 31
Ragnar Smári Guðmundsson Hvað kemur þér í jólaskap? Samveran með fjölskyldunni og matarmenningin í kringum jólin Hver er þín fyrsta jólaminning? Þær renna svolítið saman í eitt hjá mér. Ætli að það sé ekki bara að opna pakkana við jólatréð sem barn. Hver er þín uppáhalds jólaminning? Systir mín fékk einusinni grænt teppi í jólagjöf sem hún fagnaði mjög. Sagði að það væri einmitt það sem hana hafi alltaf langað í. Hún hafði ekki klárað setninguna áður en hún sleppti teppinu og sparkaði því undir sófa. Besta eða eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Mér fannst allaf best að fá Liver- pool búning í jólagjöf. Man þó að ég fékk einu sinni Liverpool úlpu sem var alltaf í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn? Ég hef alist upp við að borða fisk á aðfangadag. Þá erum við með steinasteik og allskonar fisk- tegundir á boðstólnum. T.d. sand- hverfu, skötusel, rækjur og humar svo eitthvað sé nefnt. Svo er yfir- leitt krónhjörtur fyrir þá sem vilja smá kjöt. Hvað finnst þér vera besta jólalagið? Ég er með tvö jólalög sem koma mér í gírinn. Það er Stúfur með Baggalút og Frikka Dór og svo Þegar þú blikkar með Herra Hnet- usmjör og Björgvini Halldórs. Jólaspurningar Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Karen Olsen Hvað kemur þér í jólaskap? Jólaljósin, jólalög, og enn betra ef það er snjór. Hver er þín fyrsta jólaminning? Man bara alltaf eftir hvað það var gaman um jólin því allir voru heima og saman, að borða góðan mat og njóta. Hver er þín uppáhalds jólaminning? Ætli það hafi ekki verið þegar ég fékk kettling í jólapakka, var svo hrædd við hann að ég þorði ekki að halda á honum. Besta eða eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Kettlingurinn minn, er senni- lega eftirminnilegasta jólagjöf- in. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn? Nautakjötið hjá systur minni og mág um Áramótin, KLIKK- AR aldrei. Hvað finnst þér vera besta jólalagið? Last Christmas, allan daginn og Dansaðu Vindur kemur sterkt inn líka. Jólaspurningar

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.