Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Qupperneq 36

Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2023, Qupperneq 36
Miðvikudagskvöldið 13. des- ember buðu stelpurnar í Út- gerðinni, Pastel hárstofu og Snyrtistofunni Glóey upp á létta jólagleði í Útgerðinni, árleg hefð sem hefur fest í sessi í bæjarfé- laginu. Það var gríðarlega góð þátttaka að þessu sinni og mættu rúmlega 100 manns á opnuna á tveimur tímum. Vínstofan í Út- gerðinni var opin, stelpurnar buðu upp á tilboð á vörum sín- um auk þess sem barnafataversl- unin Mó Mama mætti á svæð- ið með vönduð barnaföt, Heim- ir Ívarsson og Marta Pétursdótt- ir seldu gæs á veisluborðið og Kári Viðarsson lék lifandi tón- list fyrir gestina. Fólk verslaði jólagjafir, gerði vel við sig sjálft og naut stundarinnar í heima- byggð. Árlega happdrættið var á sínum stað þar sem einn hepp- inn viðskiptavinur var dreginn út og hlaut veglegan glaðning frá verslununum. Á meðfylgjandi mynd eru Nadía og Sóley frá Mó Mama, Kári Viðarsson sem sá um tónlistina, María á Pastel Hár- stofu, Margrét Eir á Snyrtistof- unni Glóey og Rut frá Útgerðinni. Þá vantar Maríu og Víglund sem stóðu vaktina fyrir foreldra sína í gæsasölunni. SJ Jólaopnun hjá Útgerðinni

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.