Garður - 01.10.1945, Page 3
T
37 l,w
Garður
I. HEFTI — OKTÓBER 1945
Tímcrrit Stúdentafélags Háskólans og
Stúdentafélags Reykjavíkur
Ritstjóri: Ragnar Jóhannesson
Ritnefndarmenn: Benedikt Bjarklind og
Björn Þorsteinsson
Afgreiðsla: Auglýsingaskrifstofa E. K.
STÚDENT. — Þetta orð á sér sérstakan hljóm í eyvum þeirra, sem
keppt hafa eftir að ná þessum lœrdómstitli, setið við nám og lestur
árum saman, unnið baki brotnu til að komast alla leið að þessu setta
marki. Fá tímamót í œvi manns eru eins minnistœð og stiídentsprófið.
Ungur og hraustur námsmaður, sem staðizt liefur raun prófsins og
hinna strembnu námsára og kemur frá prófborðinu út undir bert loft,
sól og sumar, — hann er hamingjusamur maður og glaður. Og silki-
hiifan hans með hvíta kollinum finnst honum eftirsóknarverðara h'ófuð-
fat en kórónur og gullinhjálmar.
Ilvað er það þá, sem gerir þessi timamót minnistœðari en önnur?
Það er vafalaust margt. Þá, eins og við önnur hliðstœð tœkifœri, blossar
upp gleðin yfir unnum sigri, yfir því að hafa náð marki, sem sett hefur
verið fyrir l'óngu. Líka segir hann til sín, f'ógnuðurinn yfir því, að vera
nú frjáls, og laus við höft skólans og aga. En síðast en ekki sízt finna
menn, beint eða óbeint, til þungrar ábyrgðar. Þegar' hjalla stúdents-
prófsins er náð, þarf námsmaðurinn að standa einn og óstúddur fremur
en nokkru sinni fyrr. Samtímis frelsinu segir alvara lífsins til sín. Nú
er að því komið að velja sér œvistarf, sem hœfi viðkomandi manni, svo
að honum geti komið menntunin að góðu lialdi og þjóðfélagið fengið
í sinn hlut nýtan borgara, Háskólanámið, sem ungi stúdentinn velur
sér, er sérundirbúningur að œvistarfinu, en stúdentsnámið hinsvegar
hin almenna menntun.
Eftir stúdentsprófið stíga því flestallir menntamenn mikilvœgari
spor en fyrr eða síðar á œvinni. Háskólaprófið, candidatsprófið, er varla
eins minnistœtt né umvajið slíkum Ijóma í huganum og stúdentsprófið.
LANDSBÓKAS/'.FN
.Ki i. 62545
~ f S L AnTj S~