Garður - 01.10.1945, Síða 9

Garður - 01.10.1945, Síða 9
GuÖmundur Arnlaugsson cand. mag.: jr Islenzkir stúdentar í Höfn og félagslíf þeirra A stríðsárunum einangruðust íslenzkir stúdentar í Kaupmannahöfn frá heimalandinu og engir nýir stúdentar bættust við að heiman. Is- lenzkir Hafnarstúdentar héldu eigi að síður uppi merkilegu félagslífi, og segir Guðmundur Arnlaugsson cand. mag. frá því í eftirfarandi grein. Hann var formaður íslenzka stúdentafélagsins í Kaupmannahöfn síðari árin. Guðmundur er stærðfræðingur að menntun og tekur nú við kennslustörfum við Ménntaskólann á Akureyri. Hann er einn af þekktustu skákmönnum okkar og var einn þeirra, sem sótti skákmót í Suður-Ameríku fyrir nokkrum árum. Allir vita að Höfn er sú borg erlendis þar sem flestir Islendingar hafa komið, en vísast hafa margir ekki gert sér grcin fyrir, hve mikið íslenzkt félagslíf hefur verið þar frá fornu fari. Það má kalla, að þráðurinn sé óslitinn frá dögum Fjölnismanna eða lengra aftur, félag hefur tekið við af félagi, og það. Stúdentafélag, sem nú starfar, er rúmlega fimmtugt. Þegar ég kom til Hafnar 1933, rak ég mig fyrst af öllu á, að í munni íslenzku stúdentanna þar var Höfn ótrúlega íslenzk borg. Ilelztu götur og mótstaðir landa báru íslenzk nöfn auk hinna dönsku, við fjölda staða voru bundnar minningar u-m íslenzka menn og íslenzk örlög. Að heyra talað um Austurbrú, Norðurbrú og Vesturbrú var eins og að vera skroppinn suður í Hafnarfjörð. Flestir munu kannast við Strykið og Löngu'línu, hreiníslenzk staðanöfn, og þá er Jórukleif ekki lakari -— hún heitir á dönsku Jorcks Passage — og það orkar víst ekki tvímælum hvort nafnið lætur 'betur í frónskum eyrum. Fundarstaðir stúdenta voru á þessum árum helzt á Vatnsenda eða í Strýtu, sem Danir kölluðu Taarnborg. Vatnsenda munu flestir þekkja, sem til Hafnar hafa komið. Það er greiðaskálinn við suðurenda Vatnanna og heitir á þarlendu máli Söpavillonen. — Fyrsta haustið mitt í Höfn átti ég heima í Silfurgötu 30. Mér v-ar sagt, að þar hefði búið íslendingur einhverntíma áður og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Garður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Garður
https://timarit.is/publication/1925

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.