Garður - 01.10.1945, Page 14
12
GARÐUR
smíðum. Þannig var Halldór Liljan Laxness um skeið árlega gestur
félagsins.
Þetta voru nokkur helztu atriðin úr starfsemi félagsins fyrir síðustu
.styrjöld og er þó mörgu sleppt, þar á meðal allri baráttu félagsins fyrir
hagsmunamálum stúdenta, fjármálalegs og félagslegs eðlis. Öll starf-
semi félagsins beindist inn á við til félagsmanna sjálfra, að töluverðu
leyti stefndi hún að því að halda við tengslunum við ættjörðina og að
.nokkru leyti byggðist hún á utanfélagsmönnum, sem ferð áttu um
Höfn. í ófriðarbyrjun varð þegar örðugra um hinn síðastnefnda þátt,
.og 1940 lokuðust gersamlega leiðirnar milli íslands og Danmerkur, svo
að ekki var um annað að gera en byggja allt á sjálfs sín kröftum.
JEftir hernámið vaknaði jafnframt hjá mönnum vitund um að brýn
þörf væri einhverra aðgerða til að auka samheldni íslendinga í Ivaup-
mannahöfn og þjappa þeim þéttar saman. Sérstaklega virtist liætta á,
að þeir landar, sem lykju námi og fengju atvinnu, myndu smám saman
draga sig út úr félagsskap landa og hverfa sjónum. Það gekk greiðlega
að fá styrk að heiman til aukinnar félagsstarfsemi og síðar bættist hin
rausnarlega gjöf gamalla Hafnarstúdenta á fimmtugsafmæli félagsins
við, svo að þeirri hlið málsins var borgið. Það er venja í Stúdentafélag-
inu, að þegar eitthvað liggur við, koma helztu áhugamenn þess saman
til skrafs og ráðagerða. Þessir fundir eru stundum kallaðir „viturra
rnanna ráð“. Þegar fenginn var styrkur að heiman, var haklið „viturra
rnanna ráð“ til að ráðstafa fénu sem bezt, og þar kom Jón Helgason
prófessor með þá tillögu, að efnt yrði til kvöldvakna, þar sem öllum
Islendingum í Höfn yrði heimil aðganga. Fyrirmynd þeirra voru þættir
er öðru hverju komu í sænska útvarpinu og nefndust rapsódíur. Þær
voru þannig úr garði gerðar, að safnað var saman ýmsu og ólí'ku efni,
,er þó allt snerti sama hlut. Þetta er afar frjálslegt form og þægilegt og
leizt mönnum vel á að reyna þetta fyrirkomulag um íslenzk efni. Fyrsta
kvöldvakan fjallaði, að mig minnir, um Bessastaði. Þar var safnað
saman mjög margvíslegu efni, er allt snerti Bessastaði: lesið upp úr
Pilti og stúlku Jóns Thoroddsens, Dægradvöl Benedikts Gröndals,
■Dddysseifskviðu í búningi Sveinbjarnar Egilssonar, Malajalöndum
Björgúlfs læknis og mörgum fleiri bókum. Þessir þættir voru tengdir
saman af framsögumanni eða þul vökunnar. Af öðrum efnum, sem valin
•voru á kvöldvökur, má nefna: Úr Skagafirði, Baðstofulíf, Úr óbyggðum,