Garður - 01.10.1945, Side 15
ÍSLENZK3R STÚDENTAR í HÖFN OG FÉLAGSLÍF ÞEIRRA 13'.
Islendingar í Ilöjn jyrir utan hiísið, sem Jón Sigurðsson átti lengst heima í. Minningar--
tajlan, sem getið er um í greininni, sést vel á myndinni.
Jónas Hallgrímsson, íslendingar í fjarlægum löndum, Vesturfarir. Úr'
óbyggðum var notað á tveim kvöldvökum og hefði getað enzt í fleiri, og
mátti svipað segja um flest hin efnin. Kvöldvökurnar voru haldnar á
hálfs mánaðar fresti og önnuðust þeir Jón Helgason prófessor og Jakob
Benediktsson bókavörður þær til skiptis. Þær voru mikilvæg og vel
þegin nýjung í félagslífi íslendinga í Höfn. Þcir félagar, Jón og Jakob,
eru þaulkunnugir íslenzkum bókmenntum og höfðu býsna gott lag á
að finna skemmtilega þætti, sem fáir þekktu. Á kvöldvökunum var'
reynt að efla söng, en þar tálmaði Söngbókarskortur. Að vísu hafði
Stúdentafélagið gefið út söngbók 1937, en sú bók var eingöngu miðuð'
við þarfir stúdenta á fundum og skemmtunum þeirra og því ekki
hentug. Því var tekið til bragðs að fjölrita söngva fyrir hverja kvöld-
vöku. Það var að því leyti gott, að þá var hægt að velja kvæðin í sam-
ræmi við efni kvöldvökunnar, en hins vegar var þetta nokkuð erfitt
og tímafrekt. Þess vegna réðst Stúdentafélagið í að gefa út söngbók
til notkunar á kvöldvökum og öðrum mótuin Islendinga og fckk tiK