Garður - 01.10.1945, Side 31
heiðarbýlið og sjálfstætt fólk
29
Stúdentar jrá Menntaskólanum á Akureyri lOjfj.
það, sem hann á. Svona hugsaði Bjartur í Sumarhúsum". Raunsæi hans
dofnar aldrei. Bjartur er á móti öllu, sem ekki kemur heim við reynslu
hans sjálfs og skoðanir: samtökum, vatnafiski, fuglaketi. Jafnvel í bók-
um er ekki allt satt, og meira að segja þó að það sé bib'lían, „því enginn
er kominn til að hafa hemil á því, sem stendur í bókum“. Þetta er
hin kalda skynsemi Islendingsins, sem svo oft hefur bjargað honum
frá heiftúð og þröngsýni og framar öllu frá trúarofstæki liðinna alda.
Rimur eru miklu merkilegri en biblían því „rímið er sannleiki út af
fyrir sig, ef það er rétt“. Svo tortrygginn er Bjartur að óreyndu, að
fari einhver að beita sér fyrir hagsmunum hans og þó sérstaklega, ef.
einhver stórmenni takast slíkt á hendur, þá hljóti eitthvað annað að
búa undir. Bjartur gerir grcinilegan mun á sér og sínum líkum og þeim
stóru. „Landsstjórnin“, segir hann, „er og verður fyrir þá stóru.......