Garður - 01.10.1945, Blaðsíða 36
34
GARÐUR
þrá eftir einhverju“. Eins var Ilósa farin að sætta sig við hlutskipti sitt,
hún hafði hugsað með tilhlökkun til þess, að barnið hennar ætti eftir
að alast upp við bæjarlækinn á heiðinni eins og hún við bæjarlækinn
heima.
Samanburði með þeim Finnu, seinni konu Bjarts, og Höllu er ekki
hægt að koma við, því að Finnu gætir lítt eða ekki sem einstaklings.
Hún leikur aðeins hlutverk hinnar veiku móður á baksviðinu. í lífi
Höllu eru þrír menn: elskhuginn, sr. Halldór; eiginmaðurinn, Ólafur, og
Þorsteinn, sem lengi hafði verið henni kær í huganum, þótt aldrei leidd-
ist hún til neins. I lífi Bjarts eru sömuleiðis þrjár konur: konan, sem
hann hafði unnað lengi, Rósa, húsdýrið Finna og lífsblómið Ásta Sól-
lilja.
Sögunni af Höllu, Ileiðarbýlinu, íýkur með því, að Halla flyzt nið-
ur í byggð — kauptúnið. Halla er komin í gegnum hreinsunareldinn,
miklar mannraunir og áhættur. Iíún getur nú horft með mildi yfir
liðna ævi. Þó getur hún jafnvel efazt um, hvort það hafi verið rétt af
henni að flytja í Heiðarhvamm. María Ragúelsdóttir hefur leyst hana
úr álögum. Nú brosir lifið við henni. Og þó að Halla hafi gefizt upp
við heiðabúskapinn, þá er hitt meiri sigur — sigur hennar yfir sjálfri
sér og fortíðinni. Nú er hún fyrst sátt við allt og alla. Mannfélagið,
sem hún hafði $agt sig úr lögum við, tekur við henni tveim höndum.
En Bjartur í Sumarhúsum er í lokin orðinn útlaginn Bjai'tur í Urð-
arseli.