Garður - 01.10.1945, Síða 37
Fyrsti kvenguðfræðingur
*
Islands
Viðtal við frú Geirþrúði Hildi Bernhöft cand. theol.
Hvernig ætli lesendur Garðs *hugsi sér fyrstu konuna, sem lokið
hefur guðfræðiprófi á íslandi? Ætli þeir hugsi sér hana þungbúna og
dökkklædda, sífellt skrýdda hempu og hökli og tónandi hátíðlegri
raustu: „Drottinn sé með yður“?
Eg er að hugsa um þetta, þegar ég geng um Garðastrætið einn þung-
brýndan septemberdag árið 1945. — Og ég brosi með sjálfum mér,
þegar þessum setningum skýtur upp í huga mér, — vegna þess, að ég
Veit hvernig fyrsti íslenzki kven-guðfræðingurinn lítur út.
Eg er á leiðinni að heimsækja fyrstu íslenzku konuna, sem lokið
hefur prófi í guðfræði við Háskóla íslands og hefur nú fuill réttindi
til að- taka vígslu og prestsembætti, hvenær scm henni sýnist.
Þessi kona er frú Hildur Bernhöft. Hún er dóttir þeirra hjónanna
■Jóns Sivertsen, fyrrum skólastjóra Verzlunarskólans, og konu hans,
frú Iíildar. Ilildur yngri er gift Sverri Bernhöft stórkaupmanni í Reykja-
vík. —
Frú Iíildur Bernhöft tekur á móti mér í fordyrinu. Fjórtán mánaða
görnul dóttir hennar er við hlið liennar og kallar ,,Babba“, þegar hún
heyrir útidyrahurðinni lokið upp og verður fyrir nokkrum vonbrigðum,
þegar hún sér, að það er ókunnugur maður, sem kemur inn.
Frú Hildur leiðir mig ti'l stofu. Þau hjón eiga myndarlegt heimili.
Og guðfræðingurinn, sem situr andspænis mér, er ung kona, fríð
sýnum. Hún er röskleg í fasi og talar jafn-hiklaust um kirkjusögu, há-
skólanám og heimilishald.
— Er það ekki áreiðanlegt, að þú sért fyrsta konan, sem tekur guð-
fræðipróf hér á landi? spyr ég.
— Jú, á því er víst enginn vafi.
3