Garður - 01.10.1945, Síða 38
36
GARÐUR
— En þær eru nokkrar, sem lokið hafa embættisprófi í öðrum grein-
um, er ekki svo?
— Jú, nokkrar hafa tekið læknapróf, og ein lögfræðipróf, það er
frú Auður Auðuns.
— En ert þú eina konan, sem lagt hefur stund á guðfræðinám?
— Nei, fleiri hafa innritazt í deildina og hafið þar nám, þótt ég sé
sú eina, sem hefur runnið skeiðið til enda.
— Geturðu sagt okkur, hvað það var, fyrst og fremst, sem olli því,
að þú valdir þér einmitt guðfræðina að viðfangsefni í Háskólanum?
— Nei, ég er hrædd um, að ég geti ekki gefið þér fullnægjandi svar
við þeirri spurningu. Hitt get ég sagt þér afdráttarlaust, að þegar á
menntaskólaárum mínum var ég ákveðin í því, að þessa námsgrein
skyldi ég velja mér, ef það ætti fyrir mér að liggja að stunda háskóla-
nám.
— Og þú hefur ekki orðið fyrir vombrigðum með námið?
— Nei, síður en svo. Ég er sannfærð um, að ég hef valið rétt. Nám.
guðfræðinema er mjög athyglisvert, og það er miklu fremur alhliða en
þið haldið, sem ekki eruð kunnugir því. Má til dæmis minna á það,
að kirkjusagan, bæði sú innlenda og erlenda, gfefur geysi-víða yfirsýn
um sögu íslands og alls heimsins. Og þá má ekki gleyma grískunni.
Grískunámið er bæði ágæt þjálfun í málfræði- og máJanámi yfirleitt,