Garður - 01.10.1945, Síða 43
STÚDENTAGARÐARXIR
41
Gamli
Garðar.
lokaákvarðanirnar reyndust heppilegar og réttar. Var Garður að lokum
reistur eftir uppdrætti Sigurðar Guðmundssonar arkitekts. Hornsteinn
að húsinu var lagður 1. des. 1933, en Stúdentagarðurinn var fullgerður
árið 1934, og átti hann því tíu ára afmæli í fyrra, en af eðlilegum ástæð-
um var lítið um dýrðir í tilefni þess.
MINNISMERKI FULLVELDISINS
Hér hefur verið drepið á helztu atriðin í forsögu Stúdentagarðsins,
sem nú gengur undir nafninu Gamli Garður, enda þótt naumast verði
sagt, að hann hafi enn slitið barnsskónum. Enn er þó ógetið merkasta
atriðsins í forsögu Garðs, en það var sú ákvörðun Stúdentaráðs, að
Stúdentagarðurinn skyldi reistur til minningar um fullveldisviðurkenn-
inguna 1918. Lét Stúdentaráð árið 1923 gera bók eina mikla, fagurlega
bundna í selskinn og búna drifnum messingskjöldum og hespum. Var
tií þess ætlazt, að í hana riti þeir karlar og konur nöfn sín, sem styðja
vilja íslenzkan stúdentagarð og minnast fullveldis íslenzku þjóðarinnar,
eins og segir á titilblaði bókarinnar. Ilefur fjöldi fólks ritað höfn sín
í bók þessa og jafnframt látið af hendi nokkurt fé, sem runnið hefur í
sjóð Stúdentagarðsins.
íslenzkir stúdentar hafa ætíð staðið framarlega í frelsisbaráttu þjóð-