Garður - 01.10.1945, Qupperneq 44
42
GARÐUR
arinnar, og andleg menning hennar hefur verið öflugasti máttarstólpi
íslenzks þjóðernis. Það var því einkar vel til fallið, að félagsheimili ís-
lenzkra háskólastúdenta yrði einnig minnismerki hins langþráða full-
veldis. Þessi ákvörðun mun einnig hafa átt sinn drjúga þátt í hinum
almennu undirtektum þjóðarinnar. Svo að segja hver sýsla á landinu
og margir einstaklingar lögðu fram fé til byggingarinnar, að ógleymd-
um mikilvægum stuðningi íslenzkra stjórnarvalda. Má því segja að
þjóðin öll hafi hér lagt hönd að verki, og allir voru á einu máli um það,
að gera yrði þenna minnisvarða fullveldisins sem myndarlegastan.
Reyndist Garður einnig uppkominn bæði glæsilegur og þægilegur til
íbúðar.
Ætlast var til, að 37 stúdentar gætu búið á Garði. Auk þess var
þar matsala og tilheyrandi borðsalir, íbúðir fyrir Garðprófast og hús-
vörð, samkomusalur, íþróttasalur og önnur nauðsynleg híbýli og
geymsiur. Garður kostaði fullbúinn með öllum hú'sgögnum um 290
þúsund krónur.
GARÐUR OG FÉLAGSLÍF STÚDENTA
Það væri of langt mál að ræða hér um félagslíf stúdenta almennt.
Stúdentalífið hefur alltaf haft nokkuð sérstæðan blæ, bæði hér á landi
og erlendis, og hefur félagslyndi og giaðværð jafnan einkennt stúdenta.
Stúdentaheimilin hafa jafnan verið miðstöðvar fyrir félagsstarfsemi
stúdenta, en vegna skorts á sameiginlegu heimili, áttu ísienzkir stúd-
entar erfitt uppdráttar með alla félagsstarfsemi, þar til Garður komst
upp. Eftir að Garður var tekinn í notkun eignuðust margir stúdentar
þar sameiginlegt heimili og innbyrðis kynning þeirra jókst að miklum
mun, sem aftur hafði í för með sér ánægjulegra félagslíf, aukna vináttu
og skilning þeirra hvers á annars högum. Garður varð miðstöð fyrir
fundarhöld og samkomur stúdenta, og flestum mun hafa fundizt, að
Garður væri raunverulegt heimili þeirra, en ekki hús, þar sem þeir að-
eins væru leigjendur.
Gömlum stúdentum, sem rifja upp minningar frá háskólaárum sín-
um endur fyrir löngu úti í Danmörku, verður alla jafnan tíðrætt um
Garð og félagslífið þar, og virðast flestir eiga þaðan margar skemmti-
legar endurminningar. Hugmyndin hefur alltaf verið sú, að Stúdenta-