Garður - 01.10.1945, Blaðsíða 46

Garður - 01.10.1945, Blaðsíða 46
44 GARÐUR GARÐUR HERNUMINN En þá kom reiðarslagið. Erlendur her steig á land á Islandi í maí 1940 og lagði Stúdentagarðinn ])egar undir sig. Garðstjórn mótmælti þessum yfirgangi, en allt kom fyrir ekki, því að nú var komin styrjöld, og þá er það ætíð sá sterki, sem ræður. Svo mikið hefur verið rætt og ritað um hernám Garðs og alla þá erfiðleika, sem íslenzkir háskólastúdentar urðu við að stríða í sam- bandi við það, að óþarft er að rekja þá sögu hér. Hvað eftir annað var þess krafizt, að Garður yrði rýmdur, en allt kom fyrir ekki, og Garður var ekki afhentur stúdentum aftur til umráða fyrr en í lok ágústmán- .aðar árið 1945 — eftir rúmlega fimm ára hernám. NÝI GARÐUR REISTUR Hernám Garðs vakti mikla gremju, ekki aðeins meðal háskólastúd- ■enta, heldur allrar þjóðarinnar. Var það líka eðlilegt, þar sem erlendur gunnfáni blakti nú yfir því húsi, sem þjóðin hafði reist til minningar um fengið fullveldi. Mun brezka herstjórnin naumast hafa gert sér ljóst, hversu dýrmætur þessi staður var í augum þjóðarinnar. Þegar sýnt var, að ekki var auðið að fá Garð rýmdan, og ástandið var slíkt, að ekki var annað sýnna en margir stúdentar yrðu að hætta við nám um óákveðinn tíma, var hafizt handa um byggingu nýs stúd- entaheimifis. Að vísu hafði áður verið gert ráð fyrir því, að annar iStúdentagarður vrði reistur, enda þess full þörf vegna mikillar fjölg- unar stúdenta, en þó var að ýmsu leyti óhagstætt að ráðast í þær fram- kvæmdir á dýrasta tíma, en það var ekki um annað að ræða. Á almennum stúdentafundi, sem haldinn var 23. marz 1942, var •einróma samþykkt að hefjast handa um byggingu nýs Stúdentagarðs og sjö manna nefnd fálið að sjá um allar framkvæmdir. Tilnefndi há- skólaráð tvo menn, próf. Agúst II. Bjarnason og próf. Alexander Jó- hannesson, Stúdentaráð tvo menn, Benedikt Bjarklind, stud. jur., og Pétur Thorsteinsson, stud. jur., Garðstjórn tvo menn, Ásberg Sigurðs- •son, stud. jur., og Lárus Pétursson, stud. jur., og ríkisstjórnin einn mann, Ásgeir Ásgeirsson, bankastjóra, sem einnig var formaður Garðstjórnar. Alexander Jóhannesson var kosinn formaður neíndarinnar. Nefnd þessi starfaði af fádæma dugnaði og ósérplægni, en allar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Garður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Garður
https://timarit.is/publication/1925

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.