Garður - 01.10.1945, Page 49

Garður - 01.10.1945, Page 49
STÚDENTAGARÐARNIR 47 LOKAORÐ Eg hef orðið nokkuð langorður, en þó aðeins stiklað á helztu atrið- unum í sögu Stúdentagarðanna. Eins og ég gat um í upphafi, er saga þeirra merkasti þátturinn í félagsmálum íslenzkra stúdenta og því efni í margar greinar. Tveir Stúdentagarðar eru nú tií afnota fyrir stúdenta og það er þeirra, að gera Garðana fræga. Þjóðin hefur hér veitt menntamönnum sínum stórkost'legar gjafir og það er þeirra að sýna í verki, að þeir verð- skuldi þær. Islenzkir háskólastúdentar, sem búa á Stúdentagörðunum nú og í framtíðinni, mega aldrei gleyma því, að þessi glæsilegu hús eru ávöxturinn af vinnu og erfiði almennings í þessu landi. Þeim ber því hverjum og einum siðferðileg skylda til þess að leitast við að skapa þann heimilisbrag á Görðunum, að til fyrirmyndar sé og nota allan sinn námstíma hér í háskólanum til þess að búa sig sem bezt undir það að geta orðið þjóðinni að sem beztu liði í baráttu hennar fyrir auknum framförum, aukinni menningu og aukinni velmegun allra landsins barna. Þannig launum vér þjóð vorri bezt fyrir allt það, sem hún hefur fyrir oss gert. Gamansamar íundargerðir Fundargerðir Stúdentafélags Reykjavík- Tir voru oft kryddaðar glensi og gamni. Ein fundargerðin er til dæmis á þessa leið: ,,5. fundur var lialdinn laugardagskvöld- ið 11. nóvember á venjulegum stað og tíma. „Fáir mættu, fáir drukku frá sér vitið, formann engan fékk ég litið, fundi var um síðir slitið!“ Annað stendur ekki í fundarbókinni það kvöldið. ★ Auðséð er það á fundabókunum, að stundum liafa menn slökkt þorsta likam- ans á fundunum eigi síður en andans. 27. janúar 1895 hélt Axel Tulinius ræðu á Stúdentafélagsfundi um símasamband milli Islands og Bretlands og samþykkti fundurinn að róa að því öllum árum, að síminn kæmist á. Þá endar fundarritarinn íundarbókina með því að snúa erindi úr Blómslurvallarímum á þessa leið: „01 í maga öld fékk rennt eins og haga þótti; ýsur draga list var lént, líka að slaga í söngva rnennt". ★ Einliver einkennilegasta fundargerðin í bókum Stúdentafélagsins er þessi: „Þann 7. apríl (1894) var fundur hald- jnn á venjulegum stað og stundu. Þar mætti „eliten" af Stúdentafélagsins með- Iimum, nefnilega fyrrverandi formaður Axel Tulinius og hafði með sér sem gest vorn elskulega vert J. G. Halberg. Þeir skemmtu sér ágætlega til kl. 1 f. m. þann 8. Það var mjög friðsamur fundur. Fundi var þá slitið. Ax. T.“.

x

Garður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Garður
https://timarit.is/publication/1925

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.