Garður - 01.10.1945, Side 53
háskólabókasafnið
51
Bienntun, þegar Landsbókasafnið fékk nýtt hús 1908 og gerðist upp
Ur því fræðabókasafn hins íslenzka háskóla, sem varð að veruleika
þrem árum síðar.
Skólarnir studdu Landsbókasafnið með því að fá því umráð yfir
hókum sínum. Allar bækur prestaskóla og læknaskóla fóru þangað,
emnig merk bókagjöf frá vestur-íslenzkum lækni 1912 og allmikið af
læknatímaritum o. fl. fram undir 1940. Drjúgur hluti af bókasafni lærða
skólans rann og þangað, bækur, sem betur þóttu samsvara þörfum
háskólaborgara eða lærdómsmanna 'en stúdentsefna.
Þrátt fyrir það, að markmið manna, sem þessu réðu, hefði átt að
vera að gera Landsbókasafnið að háskólasafni, á svipuðum grundvelli
og þjóðbókasafn Norðmanna er, og tryggja Háskóla íslands næga íhlut-
un um bókaval þess og notkun, var það ekki gert, og markmiðið
gleymdist bókstaflega.
Þegar menn vöknuðu við, átti háskólinn ungi ekkert safn. Deildir
hans höfðu afhent gamla bókakostinn óviðkomandi stofnun um ótil-
tekinn tíma, að sumra dómi án afturköllunarréttar. Slangur af bókum
hafði borizt þeim siðan og háskólakennarar haldið þeim ritum saman,
svo að vísir að 3—4 starfssöfnum (laboratorium-söfnum) var að skap-
ast. Samtímis því sem draumurinn um að reisa háskólahús fór að knýja
4'