Garður - 01.10.1945, Blaðsíða 66

Garður - 01.10.1945, Blaðsíða 66
64 GARÐUR svo var hugsanlegt. að íbúar þessarar fögru sveitar móðguðust, ef við kæmurn ekki við, heldur færum fyrir framan og beint til Eyjafjarðar. Nú var næst fyrir hendi að kjósa fararstjóra, því að þótt auðvelt væri að fara stjórnlaust unr sveitir, þar sem alltaf var hægt að spyrja til vegar, og eins, ef einhver deila kom upp eða málaferli, þá voru hreppstjórar á hverju strái til að skera úr ágreiningi og dæma mál manna — til þess kom nú raunar aldrei, en hér var það annað mál — hálfgerðir útilegu- meiin, sem höfðu fesið allar þjóðsögur Jóns Arnasonar og fleiri, gátu orðið óstýrilátir uppi á reginfjöllum. Við kusum Pál Bjarnason einum rómi, því að bæði var hann elztur og svo virtist hann bezt til höfð- ingja fallinn — dóttursonur Bjarna amtmanns Thorarensen, sem var göfugasta skáld og kominn af stórmennum. Páll var líka hár vexti, fríður sýnum og hinn traustasti um allt. Þá var nú formaðurinn feng- inn, en þegar við fórum að athuga málið nánar, fannst okkur réttara að kjósa fleiri embættismenn; alltaf gat eitthvað komið fyrir farar- stjórann, svo að hann yrði ófær til að gegna starfinu, því vissara að hafa varamann, sem þá gæti tekið við stjórninni. Eggert Claessen gekk honum næstur að stjórnvizku og skörungskap og var hann því næstum sjálfkjörinn varaformaður. Læknislaus gat hópurinn ekki verið til lengd- ar, því að alltaf getur eitthvað komið fvrir hvað heilsuna snertir og ekki í annað hús að venda að ná til læknis. Steingrímur hafði einhvern tíma bundið um brotinn fót á hænu á Akureyri, og í Odda gaf hann eitt sinn lambi laxerolíu við innanþrautum og hafði hvort tveggja farið vel úr hendi, við kusum hann því sem lækni leiðangursmanna í einu hljóði. Svo varð eitthvað að sjá fyrir okkar andlegu heill. Þótt það hefði raunar verið mest í samræmi við kringumstæðurnar að trúa aðeins á mátt sinn og megin, eins og hraustustu forfeður okkar gerðu, þá gátum við nú ekki fellt okkur við það, við vorum þó í rauninni ekki annað en fermdir, kristnir unglingar og í svona næturvolki, langt uppi í óbyggðum, gat slys eða aðrar ógnir borið að höndum, forynjur og tröll gátu ráðizt á okkur og jafnvel ekki óhugsanlegt, að drauga yrði vart. Glámur, sem Grettir glímdi við, var einmitt á þessum slóðum og fleiri illir andar. Sigurbjörn var Goodtemplar og hafði fengizt við bænalestur á fundurn þar, gegnt nokkurskonar djáknastöðu, enda var hann maður vel kristinn og hinn grandvarasti í öllu sínu líferni. Við hinir vorum bara eins og gengur og gerist, kunnum faðirvor, nokkur vers og svoi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Garður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Garður
https://timarit.is/publication/1925

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.