Garður - 01.10.1945, Qupperneq 71
Vilhjálmur Þ. Gíslaso?i skólastjóri:
Fyrstu stúdentar Verzlunar-
skólans
Fyrstu stúdentar Verzlunarskólans voru útskriíaðir 17. júní í sum-
ar. Þeir voru sjö, allir piltar. Verzlunarskólinn hefur síðustu tvö árin
starfað sem sex ára skóli eins og menntaskólarnir, og þar að auki haft
undirbúningsdeild, sem er sjöunda ár margra nemenda í skólanum,
eða fimmta árið miðað við verzlunarprófið.
Verzlunarskólinn var stofnaður árið 1905 og var þá tveggja ára
skóli. Síðan hafa smámsaman verið gerðar ýmsar breytingar á skólan-
um, aukinn námstími hans og prófkröfur. Hann varð þriggja ára skóli
1926 og fjögurra ára skóli 1935, auk þess sem undirbúningsdeildir og
framhaldsdeildir hafa verið starfræktar. 5. nóvember 1942 staðfesti
ríkisstjóri reglugerð fyrir lærdómsdeild Verzlunarskólans. Þar segir svo,
að burtfararpróf úr deildinni nefnist stúdentspróf og jafngildi samskon-
ar prófi Menntaskólans í lleykjavík og Menntaskólans á Akureyri.
Þannig var stofnuð ný deild eða ný „lína“ til stúdentsprófs, nýr
verzlunarmenntaskóli, eða hvað menn vilja kalla það, slíkt skiptir ekki
mestu máli. Meginatriðið var það, að með þessari nýju deild Verzlun-
arskólans var fullnægt sanngirniskröfu fjölmennra og mikilsverðra stétta
um aukna menntun, og að nokkuru leyti orðið við ítrekuðum óskum
margra námsmanna og heimila um víkkum stúdentsmenntunarinnar,
bæði þannig, að fleiri nemendur gætu komizt að en áður, og að náms-
greinar, sem stúdentar gætu lagt stund á, yrðu fleiri en var. Samskonar
skólar og Verzlunarskólinn er nú, voru áður til víða erlendis.
Verzlunarskólinn setti aldrei fram neinar ósanngjarnar kröfur í
þessum efnum og bað aldrei um neinar undanþágur eða afslátt á þeim
fyllstu kröfum, sem gerðar voru til menntunar og þekkingar. Skólinn