Garður - 01.10.1945, Qupperneq 73
FYRSTU STÚDENTAR YERZLUNARSKÓLANS
71
fræði og eðlisfræði er miklirminni í Verzlunarskólanum en í stærðfræði-
deildunum. Móti því koma sérgreinar Verzlunarskólans, bókfærsla,
hagfræði, verzlunarréttur o. fl., með álíka margar stundir og á milli
ber. (Vélritun og hraðritun Verzlunarskólans er ekki reiknuð með í
samanburðinum). Munurinn á stærðfræðinni er hinsvegar miklu minni.
í'ar eru tímarnir 26 í Verzlunarskólanum, móts við 20 í máladeild og
30 í stærðfræðideild í Reykjavík. í Verzlunarskólanum eru þó ekki
taldir með tímar í verðlagsreikningi og kontokurant. Latína er kennd
í Verzlunarskólanum eins og í stærðfræðideild í Reykjavík, en er ekki
kennd í þeirri deild á Akureyri.
Slíkum samanburði mætti halda áfram. Ilann sýnir, að hvort sem
litið er á fjórðabekkjarpróf Verzlunarskólans sem grundvöll lærdóms-
deildar eða á stúdentsprófið allt, þá eru allir þrír stúdentaskólarnir
sambærilegir um námsefni og námskröfur, með þeim tilbrigðum, sem
deildaskiptingin veldur. Mikið af námsbókum eru þær sömu á öllum
stöðunum og yfirferð hagað á svipaðan hátt. Loks voru yfirleitt sömu
prófdómarar við stúdentspróf Verzlunarskólans og við stúdentspróf
Menntaskólans í Reykjavík, og allir stjórnskipaðir.
Það væri annars ekki rétt að ætla sér að bera skipulag deildanna
saman lið fyrir lið. Að vísu er þeim og á að vera margt sameiginlegt,
sem talinn er almennur menntunargrundvöllur. En gildi deildaskipt-
ingarinnar er einmitt á því byggt, að deildirnar séu ekki eins í sér-
greinum sínum. Deildaskiptingin er til þess að auka fjölbreytni náms-
ins, til þess að gefa mismunandi námshæfileikum kost á að njóta sín
og til þess að létta undirbúning undir mismunandi háskólanám. Þær
greinar úr viðskipta- og hagfræði, sem Verzlunarskólinn leggur áherzlu
á, ásamt tungumálum, eru ekki síður merkar og nauðsynlegar en aðrar
námsgreinar og ekki síður fallnar til almennrar menntunar. Fræðigrein-
ar er annars erfitt að bera saman, hvort sem það er t. d. lögfræði og
læknisfræði í háskóla eða hagfræði og náttúrufræði í menntaskóla. Ilver
er sínum kostum prýdd og allar eru þær hlekkir í menntakerfi þjóðfé-
lagsins. Það er þjóðfélaginu mikil nauðsyn, að þeir menn, sem annast
viðskiptalíf þjóðarinnar og ýmis stjórnarstörf, sem því eru skyld, séu
sem bezt menntir. Þó að margir þeirra þurfi ekki annað nám en þeir
geta fengið í verzlunarskóla, eiga þeir, sem þess óska, einnig að hafa
aðgang að háskólanámi. Þetta er nú einnig stefnan úti um löndin. Ég