Upp í vindinn - 01.05.1985, Page 26
Markmið þessarar áætlunar eru því ekki eingöngu að
stækka Holland heldur lika að verja landið gegn ágangi
sjávar. Sú staðreynd verður alltaf ofarlega í hugum þeirra, er
að þessu vinna, að mikill hluti Hollands liggur lægraen meðal-
fallinn sjór og verður því að byggja varnargarða til að halda
hafinu í skefjum. Sá Delta-varnargarður er við skoðuðum var
á byggingarstigi. Búið var að koma fyrir 18 steinsteyptum
stöplum, en eftir að koma fyrir hreyfanlegum stálþiljum á
milli þeirra. Tilgangurinn með því að setja hreyfanlegar lokur
er sá, að á rennur þarna til sjávar. Þegar hafið liggur of hátt
myndi vatnið í ánni leitast við að renna inn til lands. Þá verður
hægt að loka fyrir hafið í neyð.
Delta-áætlunin er nú umfangsmesta framkvæmd i Evrópu.
Þar eð öll mannvirki verður að grunda á sandi er um einstakt
tæknilegt vandamál að ræða. Undir steinsteyptu stöplana
varð því að leggja mottur úr mismunandi steintegundum til
styrktar. Mörg stór skip voru notuð við þessa flutninga og
sum sérhönnuð til verksins. Efni sem þurfti að nota kom oft
langa leið að. Stórgrýtið (0,8—0,4 m3) var t.d. flutt frá Noregi
og Þýskalandi.
Breytingar á Oosterschelde svæðinu verða gífurlegar:
fyrir 1987 eftir 1987
smáeyjar 1.440 ha 600 ha
leðjubakkar 16.800 ha 9.600 ha
vatnssvæði 26.760 ha 25.100 ha
landsvæði 9.700 ha
svæðið alls: 45.000 ha 45.000 ha
Eins og menn vita er ekki hægt að hanna mannvirki gegn
eins stórum flóðum og komið geta, heldur er sagt að flóð af
ákv. stærð komi að ákv. tíma liðnum að meðaltali. Er þá
hannað til flóða sem koma t.d. að meðaltali á 50 ára fresti og
eru þálíkurtil aðyfirmannvirkiðflæði á50árafresti. Hönnuð-
ir reyna að verjast slíkum hamförum með yfirföllum. Það
breytir þó ekki þeirri staðreynd að mannvirkið þolir aðeins
flóð upp að 50-ára flóðum. Ástandið hjá hollensku varnar-
görðunum er að sögn forráðamanna þar:
1953 þol upp að 50 ára flóðum.
Nú (1984) þol upp að 800 ára flóðum.
Þegar Delta er fullbúið þol upp að 4000 ára flóðum.
IV. BRÝR Á RÍN
Ein af undirstöðum hins blómlega iðnaðar Rínarhérðanna,
erán nokkurs vafa góðar samgöngur. Fljótabátará Rín gegna
þar mikilvægu hlutverki, en góðarsamgöngurá landi eru ekki
síður nauðsynlegar, og þá sérstaklega góðar brýr á réttum
stöðum. Þetta lykiIhIutverk brúnna í samgöngukerfinu olli því
að þær voru nær allar eyðilagðar I síðari heimstyrjöldinni.
Strax eftir stríð var hafist handa við að endurnýja þessa hyrn-
ingarsteina iðnaðarins, en auk þess þurfti enn fleiri brýr
MYND 9. WeiBentuhurm Neuwinde-brúin.
vegna sivaxandi sérhæfingar og meiri fólksfjölda. Þessi
reisulegu mannvirki bera byggingartækni Þjóðverja fagurt
vitni, og á ferð niður Rín mátti sjá nánast allar hugsanlegar
brúargerðir. Héráeftirverðurminnst átværaf þeim fjölmörgu
brúm sem skoðaðar voru.
Weissenthurm — Neuwied-brúin
Brúargerðinni lauk árið 1979 og var heildarkostnaður um
110 milljónir DM. Gamla brúin, sem var grindarbitabrú, nægði
ekki og þurfti nýja í hennar stað. Raunar var það eitt skilyrð-
anna að nýja brúin yrði á sama stað og sú gamla, svo að ekki
þyrfti að færa aðliggjandi umferðaræðar. Einnig var mjög
brýnt að hin mikla umferð um og undir brúna truflaðist sem
allra minnst.
Lausnin fólst í því að reisa nýja brú við hlið þeirrar gömlu,
en taka síðan þá gömlu niður og renna þeirri nýju í hennar
stað, á sem skemmstum tíma. Með þessu móti stöðvaðist
bílaumferð einungis í 10 daga og skipaumferð í 2x48 klst.
Að sögn verkfræðinganna, er sýndu hópnum brúna, var
aðalvandinn fólginn í tengingu hennar við land en ekki flutn-
ingurinn sem slíkur. Mannvirkið er úr stáli, bæði brúarþver-
snið og turn. Getamáþess að hitaþensla235 m hafsins er um
10 cm en sig vegna álags um 60 cm.
Dieblich-Winningen - brúin
Himinhátt yfir ánni Mósel gnæfir þetta tignarlega mann-
virki, enn ein sönnun þess hve byggingartækni Þjóðverja
hefur náð langt. Óhætt er að segja að brúin, sem tekin var I
notkun 1972, sé mikið augnayndi og falli vel að hinum snar-
bröttu hlíðum Móseldalsins. Efnt vartil samkeppni um gerð
brúarinar, því að straumur ferðamanna um dalinn er mikill og
því brýnt að brúargerðin heppnaðist vei. Gerð voru líkön af
tillögunum og vinningstillagan boðin út.
26