Upp í vindinn - 01.05.1985, Síða 50
— Á vissum stöðum á landinu, þar sem veðurhæð getur
orðið mikil, hafa gaflspíssar reynst vanhannaðir upp við
mæninn og klæðning jafnvel losnað á húsum.
— Frágangur einangrunar og þéttinga, einkum í þakrými
húsa sem eru hæð og ris, hefur i sumum tilvikum reynst
gjörsamlega misheppnaður.
— Hönnun og frágangurfestingatimburhúsa, þarsem festi-
teinn gengur úr sökkli og upp í sperru, miðast ekki alltaf
við það að timburhús rýrnarog „sest“ með tímanum og er
þvi nauðsynlegt að hægt sé að herða slíkar festingar upp
1—2 árum eftir uppsetningu.
— Sumum klæðningarefnum, einkum múrsteinsklæðning-
um, fylgir frágangur, t.d. við glugga, sem tæpast er full-
leystur enn. Óttast að þar geti orðið um galla eða óeðli-
legan viðhaldskostnað að ræða.
6. Kostnaður og endursöluverð.
Steinsteypt einingahús frá Loftorku í Borgarnesi
Ekki hefur verið sannað að einingahús séu ódýr miðað við
hefðbundin hús. Að þvi er best er vitað eru þau þó ódýrari en
sambærileg steypt hús byggð á hefðbundinn hátt (sbr.
könnun frá 1982). Nefnt hefur verið að steypt einingahús séu
2—3% ódýrari en samsvarandi hús steypt á staðnum. Ein-
ingahús úr timbri hafa reynst um 8% ódýrari en tilsvarandi
staðbyggð timburhús en þau aftur 7—10% ódýrari en sam-
svarandi steypt hús. Þessar kostnaðartölur eru auðvitað
stöðugt deilumál, endasjaldnast rætt um sambærilega hluti.
Um endursöluverð er ennþá minna af tiltækum gögnum. Sú
reynsla sem fæst á næstu árum verður væntanlega stefnu-
markandi um hvort einingahús séu góð eðaslæm fjárfesting,
um það skal engu spáð hér.
7. Lokaorð.
Sá vaxtarbroddur sem verið hefur á framleiðslu Islenskra
einingahúsa undanfarin ár sýnir svo ekki verður um villst að
þau hafa náð markaðshlut Þessu ber að fagna því fjölbreytt-
ari byggingargerðiraukavalmöguleikaþeirra, sem áhúsnæði
þurfa að halda.
Nýjum aðferðum fylgja ný vandamál til úrlausnar, en engin
hætta er á því að íslenskir byggingarmenn séu ekki þeim
vanda vaxnir. Á breytingaskeiði er þó þörf meira aðhalds- og
Timbureiningahús frá Mát hf.
eftirlitsen ellatil að forðast mistök. Þettaaðhalds og eftirlits-
hlutverk er vanrækt vegna þess að opinberir aðilar eru ávallt
nokkuð svifaseinir i athöfnum.
FRAMLEIÐUM
STEINSTEYPUEININGAR
í ALLAR GERÐIR MANNVIRKJA
SKÓLAR
ÍÞRÓTTAHÚS
VÖRUSKEMMUR
FISKVINNSLUHÚS
IÐNAÐARHÚS
VERSLUNARHÚS
SKRIFSTOFUHÚS
ÍBÚÐARHÚS O. FL.
HÚSEININGAVERKSMKXJA
P. FRIÐRIKSSONAR
VIÐ FÍFUHVAMMSVEG í KÓPAVOGI
S.: 45944
50