Upp í vindinn - 01.05.1999, Qupperneq 16
... UPP I VINDINN
verksins með gagnaöflun, kynningu, umfjöllun og útgáfu er á-
ætlaður 150,0 millj. kr.
Verkið er að verulegu leyti skilgreint í útboðslýsingu, en hluti
af verkefni ráðgjafanna er þó að skilgreina nánar markmið og
meginviðfangsefni í samráði við verkkaupa. Á þessu ári munum
við í 4 megináföngum nálgast eina lokatillögu, sem á að kynna í
febrúar á næsta ári. Fyrsti áfangi er í febrúar þegar sveitarstjórn-
armönnum verða kynntar hugmyndir bæði að umræðugrund-
velli um ýmis atriði og frumtillögur til úrvinnslu, síðan þróa
menn nokkrar hugmyndir, og velja lokatillögu sameiginlega úr
2-3 valkostum sem athugaðir hafa verið nokkuð gaumgæfilega
með umferðarspám og tímasettri uppbyggingaráætlun og mati á
afleiðingum skipulagsins.
Aðallega eru það 4 fyrirtæki sem standa að verkinu, en þau
hafa þó sér til aðstoðar nokkuð öflugan hóp bakráðgjafa á ýms-
um sérsviðum.
Fyrirtækin 4 eru:
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf., Ármúla 4, 108 Reykja-
vík
Vinnustofa arkitekta ehf., Skólavörðustíg 12, 101 Reykjavík
Anders Nyvig A/S, Kærvej 8, DK 2970, Horsholm, Danmörk
Skaarup og Jespersen, Strandvejen 56, DK 2900, Hellerup, Dan-
mörk
Á forvalsstigi þóttu ráðgjafarnir Dalía og Nathaniel Lichfield
frá Bretlandi í samvinnu við Gest Ólafsson skipulagsfræðing hjá
Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofunni ehf, Garðastræti 17,
hafa áhugaverða hluti fram að bjóða á sviði samfélagslegrar þró-
unar, þó þeirra hópur væri ekki valinn til að bjóða í verkið í
heild. Var samið við þessa aðila utan útboðs um sérstaka grein-
argerð sem lögð verður fyrir aðalráðgjafana.
Peim er ætlað að reyna að gera grein fyrir hvaða framtíðarþró-
un mætti búast við á höfuðborgarsvæðinu, byggt á almennri
þekkingu, gögnum um þróun svæðisins og upplýsingum um
hvað gerst hefur í þeim borgum erlendis sem sambærilegastar
þykja. Þeim var sérstaklega falið að fjalla um þróun íbúafjölda og
aldursdreifingu, þróun verslunar og verslunarhátta, þörf fyrir
iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði og félagslega þróun samfélagsins.
Vinna aðalráðgjafanna mun einkum beinast að landnotkun,
samgöngukerfi, umhverfismálum og yfirbragði byggðar.
Með gerð svæðisskipulags er ætlun sveitarfélaganna að móta
sameiginlega stefnu fyrir höfuðborgarsvæðið hvað varðar þessa
þætti. Ef tekst að ná samstöðu um slíka stefnu verður svæðis-
skipulagið virkt stjórntæki sem við teljum að gefi möguleika á
bættri nýtingu fjármagns, markvissri uppbyggingu og betra sam-
félagi.
Fólksfjölgun á svæðinu hefur verið gífurleg undanfarin ár, eða
um 3000 manns á ári, og um 1100 nýjar íbúðir hafa verið byggð-
ar ár hvert. Höfuðborgarsvæðið þarf ekki að draga til sín fólk frá
landsbyggðinni en það þarf sem heild að búa við þannig skipu-
lag að það geti tekið við þessari fólksfjölgun og veitt eftir sem
áður góða og nútímalega þjónustu. Jafnframt þarf skipulag upp-
byggingarinnar að vera þannig háttað að ekki komi fram
misvægi eða erfiðleikar ef verulega dregur úr þessari miklu
aukningu.
Meðal þeirra viðfangsefna sem svæðisskipulaginu er ætlað að
taka á má nefna eftirfarandi:
• Með svæðisskipulagi verður leitast við að samræma stefnu
sveitarfélaganna í uppbyggingu svæðisins, nýta kosti þess bet-
ur og samhæfa landnotkun og skipulag og uppbyggingu um-
ferðarmannvirkj a.
• Aukin umhverfishyggja hefur stóraukið kröfur til sveitarfélaga
um að þau taki með markvissum hætti á umhverfismálum
undir formerkjum sjálfbærrar þróunar. Óhugsandi er annað en
að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu vinni að þessu sameig-
inlega, m.a. með gerð svæðisskipulags og samhæfi stefnu sína
og aðgerðir.
• Þróun atvinnulífs hefur verið misjöfn í sveitarfélögunum á
svæðinu þannig að misvægi er í dreifingu atvinnustarfsemi og
íbúðabyggðar. Leitast verður við að sjá fyrir þróun atvinnulífs
og horft verður á það hvernig dreifing íbúðahverfa fellur að
dreifingu atvinnusvæða þegar á heildina er litið.
• Þýðingarmikið er að samræma stefnu sveitarfélaganna um
uppbyggingu íbúðarhverfa á skipulagstímabilinu. Svæðið er
einn húsnæðismarkaður og eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á
eftir að breytast mikið á næstu árum, m.a. vegna breyttrar ald-
urssamsetningar íbúanna.
• Mikilvægt er að meta þróun smásöluverslunar og athuga hvort
ekki sé tilefni til að beita meiri stýringu á því sviði eins og víð-
ast er gert í nágrannalöndum okkar.
Um þessar mundir er verið að kynna sveitarfélögunum fyrstu
hugmyndir. Valin var sú leið að gefa ráðgjöfunum mjög frjálsar
hendur og varpa þeir fram skipulagshugmyndum sem hver um
sig byggir á ákveðnu þema þ.e.a.s. hvernig tillögu fáum við ef
megináhersla er lögð á einhver tiltekin markmið s.s.:
• þétting byggðar
• landslagið virt sem mest
• hvað er hagkvæmast þjóðfélagslega séð
• hversu þétt þolum við vegna umhverfismála
Að sjálfsögðu þarf svo að taka mið af mörgum sjónarmiðum
þannig að þegar 3-4 tillögur verða eftir verður þar eitthvert jafn-
vægi milli áhersluatriða. Þá verða tillögurnar metnar m.t.t.
kostnaðar, umhverfisþátta ofl. (áhrifa- eða afleiðugreiningu) og
þannig leitast við að ná fram bestu úrlausn.
Til að samstaða náist um skipulagstillögu sem nær til 8 sveit-
arfélaga þarf lillögugerðin á öllum stigum að fá ítarlega kynn-
ingu. Sú kynning má ekki einskorðast við sveitarstjórnarmenn
heldur er nauðsynlegt að um ýmsa þætti þessa máls verði opin-
ber umræða. Nýlegar tillögur áhugasamtaka um þetta mál hafa
vakið athygli og skapa því góðan grundvöll fyrir áframhaldandi
umræðu um skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu.
Sementsverksmiðjan hf.
P.O. Box 205 • 300 Akranesi
Sími 4305000 • Fax 4305001
M ALBIKU NARSTÖÐl N
HÖFÐI
• Malbikun • Grjótnára
MALBIKUN • GRJÓTNÁM
Sævarhöfða 6-10 • 132 Reykjavík
Sími 587 5576 • Fax 587 5576
ÍSLENSKIR
AÐALVERKTAKAR
16